02.09.2016

Úti­bú­ið í Garða­bæ 40 ára

Þann 1. september 1976 opnaði Búnaðarbanki Íslands útibú í Garðabæ. Það sama ár fékk Garðabær kaupstaðaréttindi. Fyrstu starfsmenn útibúsins voru Svavar Jóhannesson, útibússtjóri, Gísli Helgason, féhirðir og Erla Hjaltadóttir bankaritari. Frá árinu 1985 hefur útibúið verið staðsett við Garðatorg og síðar á árinu verður útibú Arion banka í Garðabæ eina bankaútibúið í bænum.

Meðfylgjandi er frétt úr Garðapóstinum þar sem þessum tímamótum eru gerð góð skil og rætt við Kristbjörgu Héðinsdóttur sem hefur verið útibússtjóri frá því í apríl 2013. Einnig fylgir með frétt Þjóðviljans frá árinu 1976 þar sem greint er frá opnun útibúsins.

Garðapósturinn - frétt
Þjóðviljinn - frétt

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira