05.06.2018
Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa
Þann 24. maí fór fram útskrift úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa en þá útskrifuðust 22 aðilar úr náminu, þar af 8 starfsmenn Arion banka. Eftir þessa útskrift eru 65 vottaðir fjármálaráðgjafar í starfi hjá Arion banka.
Markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem gerðar eru til ráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Námið spannar þætti fjármálamarkaðar og þjóðhagfræði auk lögfræði og siðfræði. Einnig fengu nemendur þjálfun í almennri ráðgjafafærni. Náminu lauk með prófum til að staðfesta færni þátttakenda.
Samtök fjármálafyrirtækja standa að verkefninu um vottun fjármálaráðgjafa ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Samtökum starfsfólks fjármálafyrirtækja, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.
Eftirtaldir starfsmenn Arion banka útskrifuðust að þessu sinni sem vottaðir fjármálaráðgjafar:
Elín Björg Arinbjarnardóttir, Egilsstöðum
Erla Stefánsdóttir, þjónustukjarna
Guðrún Sigurðardóttir, Akureyri
Helga Jónína Guðmundsdóttir, Sauðárkróki
Hjörtur Torfi Halldórsson, Höfða
Jórunn Ólafsdóttir, þjónustukjarna
Tara Elíasdóttir, Borgartúni 18
Þóra Björk Gísladóttir, Borgartúni 18