23.05.2016
Útskrift vottaðra fjármálaráðgjafa
Fimmtudaginn 19. maí útskrifuðust 29 aðilar úr námi til vottunar fjármálaráðgjafa, þar af 6 starfsmenn Arion banka. Útskriftin fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólanum í Reykjavík.
Nú starfa 59 vottaðir fjármálaráðgjafar hjá Arion banka en markmið vottunarinnar er að samræma þær kröfur sem eru gerðar til fjármálaráðgjafa og tryggja að þeir búi yfir nauðsynlegri þekkingu og færni í starfi. Námið nær meðal annars yfir þætti í fjármálum og þjóðhagfræði auk lögfræði og siðfræði. Einnig fengu nemendur þjálfun í almennri ráðgjafafærni. Náminu lauk með prófum til að staðfesta færni þátttakenda.
Samtök fjármálafyrirtækja standa að verkefninu um vottun fjármálaráðgjafa ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Samtökum starfsfólks fjármálafyrirtækja, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Bifröst.
Eftirtaldir starfsmenn Arion banka útskrifuðust þann 19. maí.
Ásdís Elvarsdóttir, Selfossi
Brynhildur Brynjúlfsdóttir, Hafnarfirði
Dóra Sjöfn Stefánsdóttir, Hellu
Herdís Birna Kristjánsdóttir, Borgarnesi
Ragnheiður Þengilsdóttir, Mosfellsbæ
Sóley Gíslína Guðgeirsdóttir, Hveragerði