18.08.2020

Vænt­an­leg­ar taf­ir á upp­gjör­um verð­bréfa­viðskipta

Mánudaginn 24. ágúst 2020 mun Nasdaq CSD á Íslandi taka í notkun Depend-uppgjörskerfið fyrir verðbréf. Vegna þessa hefur verið tekin ákvörðun í samráði við Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands sem og aðra markaðsaðila hérlendis um að seinka uppgjörum viðskipta með fjármálagerninga sem gerðir eru upp hjá Nasdaq CSD og fara munu fram fimmtudaginn 20. ágúst og föstudaginn 21. ágúst 2020.

Nasdaq CSD hefur tilkynnt um þessar breytingar hjá sér og farið gaumgæfileg yfir málið á vef sínum. Nálgast má fréttatilkynningu þess efnis hér.

Hér fyrir neðan er farið betur yfir hvaða áhrif það hefur á uppgjör viðskipta út frá þeim dögum sem eru fram að kerfisbreytingunum. Sem dæmi þá munu verðbréfaviðskipti sem fara fram fimmtudaginn 20. ágúst koma til uppgjörs þann 25. ágúst og viðskipti sem eiga sér stað föstudaginn 21. ágúst koma til uppgjörs 26. ágúst. Engar hreyfingar á verðbréfum munu eiga sér stað eftir hádegið 26. ágúst.

Uppgjör með viðskipti á öðrum dögum í kringum þessar breytingar verða með eðlilegum hætti.

Vikudagur

Viðskiptadagsetning

Uppgjörstilkynning

Uppgjörsdagur

Mánudagur

17.08.2020

17.-18,08.2020
(Equator)

19.08.2020
(Miðvikudagur)

Þriðjudagur

18.08.2020

18.-19,08.2020
(Equator)

20.08.2020
(Fimmtudagur)

Miðvikudagur

19.08.2020

19.-20,08.2020
(Equator)

21.08.2020 (Eitt uppgjör)
(Föstudagur)

Fimmtudagur

20.08.2020

24.08.2020
(Depend)

25.08.2020
(Þriðjudagur)

Föstudagur

21.08.2020

24.08.2020
Depend)

26.08.2020
(Miðvikudagur)

Mánudagur

24.08.2020

24.-25.08. 2020
(Depend)

26.08.2020
(Miðvikudagur)

Þriðjudagur

25.08.2020

25.-26.08. 2020
(Depend)

27.08.2020
(Fimmtudagur)

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira