15.12.2023

Vaxta­laust lán - Hvar færðu lán án vaxta og lán­töku­gjalds auk fríðinda í kaup­bæt­i?

Það eru margir sem ekki átta sig á því að þeir eru að fá vaxtalaust lán í hverjum mánuði. Þetta eru þeir sem nota kreditkort, annaðhvort í sína daglegu neyslu eða í öðrum tilvikum. Kreditkortin virka þannig að bankinn greiðir úttekt kortsins daginn eftir að verslað er en korthafi hefur allt að 37 daga til að greiða úttektina, en það veltur á því hvaða dag kortaatímabilsins færslan á kreditkortið á sér stað. Þannig er hægt að líta á kreditkort sem frábæran lánakost, sér í lagi í því vaxtastigi sem nú er. Þess ber þó að geta að sé kortareikningur ekki greiddur á eindaga reiknings reiknast vextir og kostnaður á skuldina.

Tökum dæmi. Platinum Vildarkorthafi sem notar kortið sitt á hverju kortatímabili innanlands fyrir 350.000 kr. Að meðaltali er bankinn að fjármagna úttektir hans í 19 daga. Gefum okkur að korthafi leggi þessa fjármuni inn á óbundinn hávaxtareikning sem ber 7,75% ársvexti, þá ávaxtar hann peninginn um 1.432 kr. á mánuði sem þýðir á ársgrundvelli 17.179 kr. Ekki bara það heldur fær hann einnig 25.200 vildarpunkta Icelandair í kaupbæti.

Annað dæmi. Premium World korthafi sem notar kortið sitt á hverju kortatímabili fyrir 700.000 kr. (innanlands og erlendis). Að meðaltali er bankinn að fjármagna úttektir hans í 19 daga eins og á Platinum kortinu. Gefum okkur að hann leggi þessa fjármuni inn á óbundinn hávaxtareikning sem ber 7,75% ársvexti þá ávaxtar hann peninginn um 2.862 kr. á mánuði sem þýðir á ársgrundvelli 34.359 kr. Ekki bara það heldur fær hann einnig 100.800 vildarpunkta Icelandair í kaupbæti.

Nú gæti einhver sagt, heyrðu, hvað með árgjald kortsins? Jú vissulega bera kortin árgjöld en fyrir þau er korthafi að fá ýmis fríðindi, eins og til dæmis ferðatryggingar. Árgjöldin eru föst og tengjast ekki veltu kortsins. Þeir sem greiða hátt árgjald eru yfirleitt að njóta meiri og víðtækari fríðinda en þeir sem greiða lægra árgjald en allir kreditkorthafar hafa aðgang að neyðarþjónustu sem er opin allan sólarhringinn.

Svandís Edda Hólm Jónudóttir
Vörustjóri á viðskiptabankasviði

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira