27.09.2018

Vegna um­fjöll­un­ar um sölu­ferli á eignar­hlut í BG12 í Bakka­vör Group

Með vísan til fjölmiðlaumfjöllunar undanfarna daga um málefni Bakkvarar Group vill Arion banki taka fram að bankinn lítur svo á að í hvívetna hafi verið staðið með eðlilegum og faglegum hætti að framkvæmd á söluferli á eignarhlut í BG12 í Bakkavör Group og hafnar bankinn alfarið vangaveltum um annað.

  • Arion banki átti óbeinan hlut í Bakkavor Group Ltd í gegn um eignarhaldsfélagið BG12, en hlutinn eignaðist bankinn í kjölfar skuldaskila. Samkvæmt lögum gat bankinn einungis haldið á hlutnum í takmarkaðan tíma og bar bankanum skylda til að selja eignarhlutinn um leið og tækifæri gæfist.

  • Á árinu 2015 var talið að skynsamlegt væri að selja hluti BG12 í Bakkavör Group, m. a. vegna bættrar fjárhagslegrar afkomu félagsins. BG12 réð þá hlutlausan og virtan ráðgjafa, Barclays banka, til að halda utan um sölu á hlutunum fyrir sína hönd. Fór sú ráðning fram í kjölfar ráðningarferlis þar sem 5 stórir alþjóðlegir fjárfestingabankar kepptust um að fá að veita þjónustuna.

  • Fljótlega í kjölfar þessa var sá kostur skoðaður hvort unnt væri að selja eignarhlutinn í Bakkavör Group í tengslum við skráningu hlutafjár félagsins í kauphöll. Var það mat Barclays að slík ráðstöfun væri ekki álitlegur kostur vegna ýmissa ástæðna, en þar réðu mestu mikil skuldastaða félagsins og óeining í eigandahópnum.

  • Þess í stað var ákveðið var að fara með Bakkavör Group í formlegt söluferli þar sem afmörkuðum hópi fjárfesta í þessum geira var boðin þátttaka. Barclays kynnti Bakkavör Group fyrir rúmlega 50 mögulegum fjárfestum, m. a. helstu fagfjárfestum í matvælaiðnaði og fjárfestingasjóðum. Í tengslum við söluferlið vann Barclays verðmat á félaginu, auk þess sem virt alþjóðleg ráðgjafarfyrirtæki framkvæmdu ítarlegar og heildstæðar áreiðanleikakannanir á rekstri Bakkavarar Group. Leiddu þær áreiðanleikakannanir ekkert óeðlilegt í ljós.

  • Að lokum, og eftir ítarlegar viðræður við aðra fjárfesta, var ákveðið að taka tilboði bandaríska fjárfestingasjóðsins Baupost og bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmundssona, enda var það hæsta skuldbindandi tilboðið sem barst. Tilboðið var í efri mörkum á ofangreindu verðmati Barclays. Rétt er að taka fram að aðrir hluthafar Bakkavarar seldu einnig sína hluti á þessum tíma og á sama verði, þ.m.t. stórir erlendir fagfjárfestar.

  • Sú hækkun á verði hluta í Bakkavör Group sem varð á þeim tæpu tveimur árum sem liðu á milli þess sem BG12 seldi hlut sinn í félaginu og þangað til félagið var skráð á markað á árinu 2017, verður rakin til þriggja þátta. Í fyrsta lagi hafði afkoma félagsins batnað umtalsvert vegna ófyrirsjáanlegrar þróunar á mörkuðum félagsins. Í öðru lagi hafði félaginu tekist að lækka skuldastöðu sína. Í þriðja lagi hafði verð hlutabréfa félaga í matvælaiðnaði almennt hækkað á markaði og tók skráningarverð Bakkavarar Group vitaskuld mið af þeirri almennu hækkun.

  • Að mati Arion banka fólust í söluverði Bakkavarar Group mjög vel viðunandi endurheimtur þeirra aðila sem lögðu til stofnunar BG12, en verðmæti eignarhlutar þeirra fimmfaldaðist meðan hluturinn var í eigu þess félags. Árleg ávöxtun þessara aðila nam u. þ. b. 40% á ári á eignarhaldstímanum.

Með vísan til framangreinds er hafnað sjónarmiðum um að óeðlilega hafi verið staðið að ráðstöfun á eignarhlut BG12 í Bakkavör Group.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira