14.09.2018

Vegna vinnu við tölvu­kerfi Reikni­stofu bankanna um helg­ina

Um helgina mun fara fram umfangsmikil vinna hjá Reiknistofu bankanna og Íslandsbanka vegna innleiðingar nýs tölvukerfis hjá Íslandsbanka.

Fyrir liggur að upplýsingar um millifærslur og greiðslur til og frá Íslandsbanka, sem framkvæmdar verða frá miðnætti aðfaranótt laugardags til sunnudagskvölds, verða ekki sýnilegar að fullu í kerfum Íslandsbanka, en verða sýnilegar í kerfum Arion banka. Þó upplýsingar um millifærslur og greiðslur sjáist ekki munu þær vera til ráðstöfunar.

Allar upplýsingar í öllum kerfum bankanna eiga svo að vera réttar frá og með sunnudagskvöldinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira