08.06.2016

Vel heppn­að Fin­Tech partý

FinTech partý Arion banka var haldið um helgina. Það voru 11 teymi sem tóku þátt sem er nokkuð meira en þekkist í sambærilegum keppnum á Íslandi. Teymin sátu við í 30 klukkutíma og forrituðu fjármálalausnir framtíðarinnar.

Úrslitin í hakkaþoninu voru tilkynnt stuttu eftir kynningar teymanna á laugardagkvöldið. Þau urðu eftirfarandi:

Teymið Quantity theory vann til verðlauna í flokknum Besta rof bankaþjónustu (e. disrupt the bank) og hlaut í verðlaun flugmiða til San Fransisco. Teymið vann að blockchain lausn sem gerir ferðamönnum kleift að nýta rafeyri á Íslandi og bönkum kleift að veita rafeyrisþjónustu.

Teymið Sveittu Finnarnir vann til verðlauna í flokknum Besti stuðningur við bankaþjónustu (e. enable the bank) og hlaut í verðlaun Apple Watch sem og miða á Ultrahack á Slush. Teymið vann að þjónustu sem greinir talað og skrifað mál og gerir bönkum kleift að veita persónulega en sjálfvirka þjónustu. Tæknin á bak við lausnina byggir á málgreiningu (Natural Language Processing).

Teymið Afland vann til verðlauna fyrir bestu tæknilegu útfærsluna og hlaut eitt stykki Yoda í verðlaun. Teymið vann að lausn sem aðstoðar fólk og félög með sameiginlega fjársöfnun, opinni eða lokaðri, fyrir einhverju ákveðnu fjárhæðartakmarki.

Við óskum þessum teymum innilega til hamingju með verðlaunin sem og öllum hinum teymunum sem tóku þátt fyrir áhugaverðar og spennandi framtíðar fjármálalausnir.

Meðfylgjandi má sjá myndir af vinningsteymunum en fleiri myndir frá viðburðinum má sjá á Facebooksíðu FinTech partý.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira