02.09.2016

Vel heppn­uð bæj­ar­há­tíð í Mos­fells­bæ

Bæjarhátíðin Í túninu heima var haldin síðustu helgi í Mosfellsbæ. Dagskrá hátíðarinnar var glæsileg að vanda og starfsfólk útibús Arion banka í Mosfellsbæ tók þátt í hátíðarhöldunum. Útibúið var skreytt í rauða lit hverfisins og allir starfsmenn mættu í rauðum Aftureldingarbúningum. Boðið var upp á kaffi og kleinur og ungir sem aldnir fengu andlitsmálningu. Skólakór Varmárskóla flutti nokkur lög og Bíbí, Blaki og Ari kíktu í heimsókn.

Tindahlaup Mosfellsbæjar var haldið í áttunda sinn samhliða hátíðinni og var Arion banki styrktaraðili hlaupsins líkt og fyrri ár. Hlaupið er náttúruhlaup fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Í ár var metskráning en 132 hlauparar frá öllum heimshornum tóku þátt. Fjórar vegalengdir voru í boði, frá einum tindi (12 km) og upp í sjö tinda (37 km).

Úrslit Tindahlaupsins má sjá hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira