20.10.2016

Vel sótt­ur fund­ur Arion banka og Stefnis hf. um aflétt­ingu hafta

Í gær var haldinn vel heppnaður fundur í höfuðstöðvum bankans á vegum Arion banka og Stefnis hf. um þau tækifæri sem felast í afléttingu hafta.

Stórt skref hefur verið stigið í átt að afléttingu fjármagnshafta með heimild til einstaklinga og fyrirtækja til fjárfestinga erlendis. Efnið er mörgum hugleikið þessi misserin ef marka má aðsóknina en um 200 manns sóttu fundinn.

Bankastjóri Arion banka, Höskuldur H. Ólafsson, setti fundinn og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra ávarpaði gesti.

Hrafn Steinarsson, sérfræðingur í Greiningardeild, fór yfir helstu atriði laganna um losun fjármagnshafta, efnahagsleg áhrif þeirra og hvaða tækifæri opnast fyrir heimili og fyrirtæki.

Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri Stefnis hf., fór yfir erlenda sjóði í stýringu Stefnis hf. en sjóðirnir eiga sér samfellda rekstrarsögu frá því fyrir síðustu aldamót.

Að lokum fór Marinó Örn Tryggvason, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta yfir hvaða aðferðir sé hægt að nota til þess að auka vægi erlendra eigna í eignasöfnum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira