01.11.2020

Við fjölgum í þjónustu­ver­inu okk­ar yf­ir mán­aðar­mót­in – Tök­umst á við þetta sam­an

Í ljósi aðstæðna mun áfram vera lokað á heimsóknir í útibú okkar nema þær séu bókaðar fyrir fram og þá einungis fyrir mjög brýn erindi. Við hvetjum viðskiptavini okkar til að nýta aðrar þjónustuleiðir eins og Arion appið og netbankann þar sem hægt er að framkvæma nær allar aðgerðir.

Við erum áfram til staðar fyrir þig og höfum fjölgað starfsfólki til að sinna erindum í þjónustuverinu yfir mánaðarmótin. Þú getur heyrt í okkur í síma 444 7000, sent okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is eða haft samband við okkur í gegnum netspjall á www.arionbanki.is. Einnig eru hraðbankar okkar aðgengilegir um land allt og bjóða nær allir upp á innlagnir, úttektir og margt fleira.

Ef erindið er brýnt getur þú bókað tíma

Ef úrlausnarefnið er brýnt getur þú óskað eftir afgreiðslu í útibúi. Þjónusta í útibúi er þó aðeins veitt ef erindið er þess eðlis að ekki er unnt að leysa úr málum nema augliti til auglits. Í slíkum tilvikum þarftu að bóka tíma sérstaklega. Hringdu í okkur, sendu tölvupóst eða skráðu þig hér fyrir neðan og við höfum samband við þig varðandi tímabókun.

Bóka tíma

Tökumst á við þetta saman.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira