20.10.2026
Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!
Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017. Styttan vakti fljótt heimsathygli þar sem hún stóð augliti til auglitis við nautið fræga í árásarhamnum (e. Charging Bull) á Wall Street, og hefur á síðustu árum orðið eitt þekktasta tákn heims fyrir styrk, hugrekki og leiðtogahæfileika kvenna. Í dag stendur Óttalausa stúlkan fyrir framan Kauphöllina í New York þar sem þúsundir gesta sjá hana daglega.
Styttan kom til okkar í Arion banka dagana 15.-16. október, til viðurkenningar á góðum árangri Konur fjárfestum átaksverkefnis bankans. Afar sjaldgæft er að styttan ferðist frá heimahögum sínum.
Fjöldi manns gerði sér leið í höfuðstöðvar Arion, Borgartúni 19, til að líta Óttalausu stúlkuna augum og smella af sér nokkrum ljósmyndum með henni; ungar konur, fjölskyldur, mæður með börn sín, eldri konur. Það var virkilega ánægjulegt að sjá brosin sem hún laðaði fram á andlitum gesta í húsinu. Boðskapur styttunnar er að hvetja fólk til að mæta framtíðinni af hugrekki og hafa trú á eigin getu.
Við þökkum Óttalausu stúlkunni hjartanlega fyrir komuna og eins þeim sem litu inn hjá okkur til að heilsa upp á hana. Um leið hvetjum við ykkur til að fylgjast með dagskrá Konur fjárfestum en fleiri en 10.000 konur hafa sótt viðburði átaksins fram til þessa.