29.11.2021

Við vör­um við korta­svikum á ferða­lögum er­lendis

Arion banki varar við kortasvikum þegar verslað er erlendis. Hafa svik t.a.m. komið upp þegar verslað er í einstaka raftækjaverslunum á Tenerife en margir Íslendingar leggja leið sína þangað þessa dagana. Við hvetjum því okkar korthafa til sérstakrar varkárni í viðskiptum og minnum á að staðfesta aldrei færslu með PIN númeri nema að skoða vel hvaða upphæð er verið að samþykkja. Kortafærsla sem staðfest er með PIN númeri er jafnan óendurkræf.

Ef korthafi lendir í kortasvikum er mikilvægt að hafa strax samband við þjónustuver Aron banka og láta loka kortinu til að koma í veg fyrir frekara tjón. Utan opnunartíma bankans er hægt að hringja í neyðarnúmer Valitor í síma 525-2000.

Nánari upplýsingar um öryggismál má finna hér þar sem er meðal annars að finna upplýsingar um algeng netsvik.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira