22.03.2018

Viðskipta­vinir Arion banka gáfu önd­unar­nema og gegnum­lýsingar­tæki

Barnaspítali Hringsins fékk í dag 16 nýja öndunarnema og tvö gegnumlýsingartæki að gjöf frá viðskiptavinum Arion banka. Gjafirnar, sem eru að verðmæti á þriðju milljón króna, munu að sögn starfsfólks og stjórnenda spítalans nýtast afar vel. Öndunarnemarnir nýtast m.a. við umönnun fyrirbura sem nálgast útskrift en einnig nýbura með sértæk vandamál og fyrirbura sem sækja sérhæft eftirlit til spítalans. Gegnumlýsingartæki eru einkum notuð við uppsetningu æðaleggja.

Forsagan er sú að fyrir um ári var sérstökum söfnunarbaukum komið fyrir í útibúum Arion banka um land allt. Markmiðið með baukunum var að gefa viðskiptavinum bankans kost á að losna við við smámynt, bæði innlenda og erlenda, úr vösunum en um leið að safna fjármunum til góðra málefna. Baukurinn Ari, einn af íbúum Sparilands, barnaþjónustu Arion banka, hefur haldið utan um söfnunina síðustu mánuði undir yfirskriftinni Ég gef til barna.

Þegar talið var úr baukunum kom í ljós að viðskiptavinir Arion banka höfðu gefið ríflega 2,6 milljónir króna til söfnunarinnar. Úr vöndu var að ráða þegar kom að því að velja hvernig fjármununum skyldi varið en niðurstaðan að þessu sinni var að gefa þá til Barnaspítala Hringsins þar sem hæfileikaríkt starfsfólk vinnur kraftaverk í þágu framtíðar barna landsins á hverjum degi.

Það var Aðalheiður Guðgeirsdóttir, svæðisstjóri Arion banka á Keflavíkurflugvelli, sem afhenti Rakel Björgu Jónsdóttur, sérfræðingi í hjúkrun nýbura, styrkinn í húsakynnum Barnaspítala Hringsins.

Aðalheiður Guðgeirsdóttir:

„Mörg okkar þekkja af eigin raun þau óeigingjörnu störf sem starfsfólk Barnaspítala Hringsins vinnur á hverjum einasta degi en öll vitum við hversu mikilvægur spítalinn er okkur og komandi kynslóðum. Það er mér því mikill heiður að fá að afhenda spítalanum þessa rausnarlegu gjöf frá viðskiptavinum Arion banka.“

Rakel Björg Jónsdóttir:

„Við þökkum viðskiptavinum Arion banka af heilum hug fyrir þessa myndarlegu gjöf og bankanum fyrir að hvetja til samfélagsþátttöku af þessum toga. Tækin sem um ræðir munu nýtast okkur mjög vel við að veita áfram þá nauðsynlegu umönnun sem okkur ber, en tækin eru mikilvægur liður í eftirliti okkar með lífsmörkum fyrirbura síðustu daga og vikur fyrir heimferð sem og við uppsetningu æðaleggja hjá minnstu skjólstæðingum okkar. Þá eru öndunarnemarnir mikilvægur stuðningur við göngudeildarhluta þjónustu okkar en börn sem eru tilbúin til útskrifar að öllu leyti nema að þau hafa ekki þroska til að drekka að fullu, geta farið heim til fjölskyldu sinnar tengd við öndunarnemann sem lætur vita ef truflun verður á öndunarmynstri barnsins.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira