08.05.2019

Viðskipta­vinir Arion banka geta nú greitt með Apple Pay!

Viðskiptavinir Arion banka, sem eru með Visa debet- eða kreditkort, geta frá og með deginum í dag notað Apple Pay til að greiða fyrir vörur og þjónustu.

Apple Pay er mjög einfalt og öruggt í notkun. Þannig geta viðskiptavinir nú greitt með iPhone símum, Apple Watch úrum og Mac tölvum á fljótlegan og öruggan hátt í verslunum, á vefsíðum, í snjallforritum, auk fjölda annarra staða hér á landi og víðs vegar um heim. Viðskiptavinir, sem nýta sér kosti Apple Pay, fá áfram öll þau fríðindi og tilboð sem fylgja kredit- og debetkortum Arion banka og enginn viðbótarkostnaður fylgir því að greiða með Apple Pay.

Þegar Apple Pay er notað til að greiða fyrir vörur og þjónustu í verslunum með iPhone síma eða Apple Watch úri þá fer greiðslan fram með einföldum og snertilausum hætti. Þegar vara eða þjónusta er keypt í gegnum snjallforrit eða á vefnum, er einn af kostum Apple Pay að ekki þarf lengur að fylla út greiðsluupplýsingar eða endurtekið að fylla út upplýsingar um kaupanda og hvert senda á vöru.

Apple Pay er auðvelt í uppsetningu og það er einfalt að tengja greiðslukort við Apple Pay í gegnum Arion appið. Viðskiptavinir velja einfaldlega það kort í Arion appinu sem þeir vilja tengja við Apple Pay og smella síðan á „Bæta korti í Apple Wallet“. Nauðsynlegt er að vera með nýjustu uppfærslu af Arion appinu.

Öryggi og persónuvernd eru í fyrirrúmi. Þegar greitt er með Apple Pay þarf notandi að auðkenna sig með fingrafara- eða andlitsskanna iPhone símans áður en greiðsla er framkvæmd. Þegar kredit- eða debetkort er notað með Apple Pay, eru kortanúmer hvorki geymd í tækinu né á vefþjónum Apple. Þess í stað er sérstökum sýndarnúmerum úthlutað, þau dulkóðuð og geymd með öruggum hætti í því tæki sem notað er, hvort sem það er iPhone sími, Apple Watch úr eða Mac tölva.

Stefán Pétursson, starfandi bankastjóri Arion banka:

,,Það er ánægjulegt að geta nú boðið viðskiptavinum Arion banka að greiða fyrir vörur og þjónustu í gegnum Apple Pay. Bankaþjónusta er að breytast mikið og hratt og við höfum verið í fararbroddi um tækninýjungar. Apple Pay er einfalt í notkun og smellpassar við þá stefnu okkar að bjóða upp á framsækna og þægilega bankaþjónustu hvar og hvenær sem er.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira