28.06.2017

Viðskipta­vinir Arion banka styrkja Krabba­meins­félagið

Katrín Rós Gunnarsdóttir, útibússtjóri Arion banka í vesturbæ, afhenti í dag Krabbameinsfélagi Íslands styrk að fjárhæð 1.209.000 króna í nafni viðskiptavina bankans. Upphæðin rennur til rekstrar Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins þar sem boðið er upp á fræðslu, upplýsingar, ráðgjöf og stuðning við fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur.

„Þessi veglegi styrkur frá viðskiptavinum Arion banka mun gagnast vel í að efla enn frekar faglega þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þeirra. Í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins starfa hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi og sálfræðingur en þjónustan er öllum að kostnaðarlausu“ segir Sigrún Lillie Magnúsdóttir, forstöðumaður Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, sem veitti styrknum móttöku ásamt Kristjáni Sturlusyni, framkvæmdastjóra félagsins.

Upphæðin safnaðist í kjölfar þess að Arion banki kynnti nýja og einfalda leið fyrir einstaklinga til að koma í viðskipti við bankann. Fyrstu nýju viðskiptavinunum bauðst að velja á milli nokkurra inngöngugjafa eða að úthluta 1.500 krónum til Krabbameinsfélagsins og völdu alls 806 viðskiptavinir að fara þá leið.

„Arion banki hefur um árabil verið stoltur styrktaraðili Krabbameinsfélags Íslands. Það er sannur heiður að fá tækifæri hér í dag til að útvíkka þann stuðning með fjárstuðningi frá viðskiptavinum bankans“ segir Katrín Rós.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira