06.04.2018

Viðskipta­vinir var­aðir við svika­póstum

Arion banki varar við svikapóstum sem að undanförnu hafa verið sendir út í nafni Valitor, Kreditkorta og fleiri aðila. Efni póstanna er fölsk tilkynning um að korti viðtakanda hafi verið lokað og til þess að opna það aftur þurfi að gefa upp kortaupplýsingar.

Við ráðleggjum viðskiptavinum okkar eindregið að opna ekki slíka pósta. Séu þeir opnaðir er mikilvægt að smella ekki á hlekki sem þeir innihalda og gefa ekki undir neinum kringumstæðum upp kortaupplýsingar, lykilorð, leyninúmer eða aðrar upplýsingar. Slíkum póstum er best að eyða strax.

Hafi viðtakandi brugðist við slíkum pósti er mikilvægt að hafa strax samband við Arion banka eða Valitor.

Það skal áréttað að Arion banki og Valitor biðja aldrei um kortanúmer, gildistíma, öryggisnúmer eða aðrar slíkar upplýsinga í tölvupósti. Þá skal það einnig tekið fram að ekki er um tölvuárás að ræða heldur nokkuð hefðbundna svikapósta. Slíkir póstar verða sífellt algengari og er því mikilvægt fyrir alla að vera á varðbergi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira