02.10.2026

Vinnings­haf­ar í Sumar­launa­leik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Jafnframt hvöttum við unglinga til að taka upp stutt og skemmtileg myndbönd undir myllumerkinu #ArionSport á samfélagsmiðlum. Viðtökurnar voru frábærar og um hundrað myndbönd voru merkt með myllumerkinu yfir sumarið. 

Dregið hefur verið úr vinningapottinum og vinningshafar í Sumarlaunaleiknum í ár eru: 

  • Einar Breki Jónsson 

  • Bjarney Sara A. Haraldsdóttir 

  • Sóldís Lilja Sveinbjörnsdóttir 

  • Lovísa Ýr Jóhannsdóttir 

  • Starkaður Máni Sveinsson 

Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum öllum þeim sem tóku þátt í leiknum fyrir frábær viðbrögð. Við hlökkum til að sjá enn fleiri taka þátt næsta sumar. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira