29.09.2022

Vinnings­haf­ar í sumar­launa­leik Arion 2022

Við erum búin að draga út í sumarlaunaleiknum okkar en unglingar sem lögðu launin sín inn á reikning hjá bankanum í sumar voru sjálfkrafa með í leiknum.

Fimm heppnir unglingar voru dregnir út og fengu 100.000 kr. hver og hefur fjárhæðin verið lögð inn á reikninga þeirra.

Á meðfylgjandi mynd má sjá vinningshafana Pétur Kára Hannesson, Helenu Björgu Oddsdóttur, Karvel Nóa Friðriksson og Evu Maríu Baldvinsdóttur. Á myndina vantar Hrafnkel Óla Björnsson. Það var Kristrún Ágústsdóttir, þjónustustjóri í Borgartúni 19, sem afhendi þeim blómvöndinn og viðurkenninguna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira