29.10.2024

Vörður aðal­bak­hjarl Ís­lands­meist­ara bæði kvenna og karla í knatt­spyrnu

Gaman er að segja frá því að Vörður, dótturfélag Arion banka, er aðalbakhjarl Breiðabliks sem varð á dögunum Íslandsmeistari í knattspyrnu bæði kvenna og karla.

Sömuleiðis er okkur gleðiefni að tilkynna að samningur milli Varðar og Breiðabliks hefur verið framlengdur til ársins 2026.

Langt og farsælt samstarf Varðar og Breiðabliks

Samstarf Varðar og Breiðabliks á sér langa og farsæla sögu en Vörður hefur verið bakhjarl knattspyrnudeildarinnar frá árinu 2010. Samningurinn styður við meistaraflokka félagsins í efstu deild karla og kvenna og eflir jafnframt uppeldis- og afreksstarf stærstu knattspyrnudeildar landsins.

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, segir: „Í starfi okkar hjá Verði leggjum við ríka áherslu á forvarnir. Íþróttir hafa fyrir löngu sannað gildið sitt sem öflug forvörn, bæði þegar kemur að heilsufars- og félagslegum þáttum. Með samstarfi okkar við Breiðablik, eitt öflugasta íþróttafélag landsins, getum við í sameiningu haldið áfram að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag.“

Saman vilja Vörður og Breiðablik hvetja til hollrar hreyfingar og heilbrigðs lífernis og þannig styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um heilsu og vellíðan. Regluleg hreyfing hefur margþættan ávinning fyrir heilsuna, minnkar líkur á sjúkdómum, eykur lífsgæði og lengir lífið.

Vörður hlakkar til áframhaldandi samstarfs.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira