27.02.2024

Vörður með Arion banka á Smára­torgi

Vörður hefur opnað þjónustuskrifstofu með Arion banka á Smáratorgi í Kópavogi. Þar er hægt að nálgast alla trygginga- og bankaþjónustu á einum og sama stað.

Samstarf Varðar og Arion tryggir að viðskiptavinir geta nálgast bankaþjónustu og tryggingar á einum stað til að spara sér sporin. Ráðgjafar Varðar aðstoða þig við hvaðeina sem lýtur að tryggingum og tjónum og ráðgjafar okkar veita alla þjónustu er snýr að fjármálum og leiðbeina með notkun á stafrænum þjónustuleiðum.

Sem fyrr er lögð áhersla á einfalda og þægilega banka- og tryggingaþjónustu með ánægju viðskiptavina að leiðarljósi.

Við tökum vel á móti þér á Smáratorgi 10 alla virka daga milli klukkan 10:00-16:00.

Hlökkum til að sjá þig!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira