24.04.2026

Vör­um við svika­her­ferð í nafni Arion banka

Nú gengur yfir óvenju umsvifamikil svikaherferð þar sem óprúttnir aðilar senda skilaboð í nafni Arion banka. Slík skilaboð geta borist með tölvupósti, sms‑skilaboðum eða í gegnum samfélagsmiðla og eru oft sett fram með þeim hætti að þörf sé á viðbrögðum.


Við viljum árétta að Arion banki biður aldrei um aðgangsorð, kortaupplýsingar, auðkennisupplýsingar eða aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar með skilaboðum eða tölvupósti.

Við hvetjum alla til að sýna aðgát gagnvart óvæntum eða grunsamlegum skilaboðum.

Rétt að hafa í huga:
  • Smelltu ekki á hlekki og opnaðu ekki viðhengi í grunsamlegum skilaboðum.

  • Veittu aldrei persónu‑ eða greiðsluupplýsingar nema í gegnum öruggar leiðir.

  • Ef þú ert í vafa hvort skilaboð séu frá okkur eða ekki skaltu hafa beint samband við bankann.

Ef þú hefur deilt upplýsingum um lykilorð eða auðkenni þarftu strax að hafa samband við okkur með því að hringja í síma 444 7000.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira