13.04.2016

Vörumessa Ungra frum­kvöðla

Arion banki er stoltur styrktaraðili Ungra frumkvöðla (Junior Achievement) en samtökin standa fyrir nýsköpunarátaki í stofnun og rekstri fyrirtækja fyrir framhaldsskólanema á Íslandi.

Dagana 9. og 10. apríl fór fram vörumessa í Smáralind þar sem framhaldsskólanemendurnir kynntu afrakstur vetrarins og seldu vörur sínar. Var þetta frábært tækifæri fyrir almenning til að skoða viðskiptahugmyndir unga fólksins og styðja við fyrstu skref þeirra í viðskiptalífinu. Ásamt frumkvöðlunum seldu 60 mismunandi fyrirtæki vörur sínar á messunni.

Yfir 300 nemendur í 8 framhaldsskólum tóku þátt í nýsköpunarátaki Ungra Frumkvöðla árið 2016. Skólarnir eru: Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Verslunarskóli Íslands, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Menntaskólinn við Sund, Menntaskólinn í Kópavogi, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Menntaskólinn við Hamrahlíð. Fulltrúar Arion banka aðstoðuðu hópa í Fjölbrautarskólanum við Ármúla og Menntaskólanum í Kópavogi við sín verkefni.

Meðfylgjandi eru myndir frá vörumessunni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira