11.04.2019

Vörumessa Ungra frum­kvöðla í Smáralind

Helgina 5. og 6. apríl var haldin vörumessa JA Iceland - Ungra frumkvöðla í Smáralind. Vörumessan er nokkurs konar uppskeruhátíð, en frá áramótum hafa 550 nemendur í 13 framhaldsskólum unnið sleitulaust við að þróa vörur sem voru til sýnis og sölu í Smáralindinni. Alls kynntu um 120 fyrirtæki vörur sínar og þjónustu.

Fyrirtækin hafa þróað alls kyns vörur, allt frá matvælum upp í hugbúnaðarlausnir. Fyrirtækjasmiðja Ungra frumkvöðla hefur stækkað ár frá ári og var viðburðurinn í ár sá stærsti til þessa. Fyrirtækjasmiðjunni lýkur með uppskeruhátíð þann 30. apríl í Arion banka, en þangað er 20 fyrirtækjum boðið til að vera með kynningu fyrir dómara og gesti. Aðalverðlaunin fela m.a. í sér að vera fulltrúi Íslands í Evrópukeppni Junior Achievement í Lille í Frakklandi í byrjun júlí.

„Krafturinn í framhaldsskólanemum leyndi sér ekki um helgina. Margar frábærar og frumlegar hugmyndir voru kynntar og það fyllir mann bjartsýni fyrir hönd lands og þjóðar að sjá hversu skapandi nemendurnir eru. Rauði þráðurinn í þeim vörum sem kynntar voru í ár er sjálfbærni og umhverfismál. Ungu kynslóðinni er sannarlega umhugað um að vernda jörðina okkar auk þess að vera með mannbætandi lausnir í víðum skilningi. Það eru mikil forréttindi að vera bakhjarl þessa verkefnis“, segir Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunar hjá Arion banka.

Junior Achievement eru aldargömul félagssamtök sem voru upphaflega stofnuð í Bandaríkjunum. Verkefni samtakanna snerta nú meira en 10 milljónir nemenda á hverju ári í um 122 löndum. Þar af yfir 4 milljónir nemenda í 39 Evrópulöndum, en þau hafa starfað nánast samfleytt hér á landi frá árinu 2002. Aðaláherslan í starfseminni er að undirbúa nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi hjá ungu fólki með aukinni viðskiptamenntun og fjármálalæsi, og auka þar með færni þeirra til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar.

Arion banki er einn af bakhjörlum JA Iceland – Ungra frumkvöðla.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira