14.08.2019

Yf­ir 2.500 þátt­tak­endur á Arion banka mót­inu í fót­bolta

Yfir 2.500 börn hafa skráð sig til leiks á Arion banka mótinu í fótbolta sem haldið verður um helgina, 17.-18. ágúst, á félagssvæði Víkings í Fossvogi. Er þetta í tíunda sinn sem mótið er haldið við frábærar undirtektir.

Arion banka mótið er fyrir 7. og 8. flokk stúlkna og drengja og er stærsta mótið þar sem bæði kynin spila á sama tíma. Mótið stendur yfir frá kl. 9.00-17.00 á laugardag og frá kl. 9.00-15.00 á sunnudag. Keppt verður á 21 velli og verður mótið í Sparilandsbúningi. Bíbí, Blaki og Ari verða á svæðinu og allir þátttakendur fá glæsilegan glaðning og verðlaunapening.

Mikill fjöldi fólks verður samankominn á mótinu og til gamans má geta að milli 350-400 sjálfboðaliðar verða á svæðinu og þar af eru 250 dómarar sem munu dæma í kringum 6.500 leiki hjá 460 liðum yfir helgina. Það má því búast við skemmtilegri stemningu í Víkinni í Fossvogi um helgina þegar ungir fótboltaiðkendur ásamt stuðningsfólki koma saman.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira