20.03.2025
Yfirlit hafa verið birt
Yfirlit um iðgjaldagreiðslur á tímabilinu 1. september 2023 til 14. mars 2025 hafa verið birt á Mínum síðum sjóðsins. Á yfirlitinu má einnig sjá stöðuna m.v. 14. mars 2025.
Við hvetjum sjóðfélaga til að fara vel yfir yfirlitin sín og ef iðgjöld vantar eða eru ekki í samræmi við launaseðla, að hafa tafarlaust samband við launagreiðanda eða lifeyristhjonusta@arionbanki.is.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissparnað geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.