22.10.2019

Yfir­sýn yf­ir reiknings- og korta­upplýsingar frá öðr­um bönk­um í Arion app­inu

Arion banki hefur opnað á aðgengi að reiknings- og kortaupplýsingum frá öðrum bönkum í Arion banka appinu. Um er að ræða tímamót í fjármálaþjónustu hér á landi. Allir sem eru með reikninga eða kort hjá fleiri en einum banka og veita heimild fyrir flutningi gagna, geta fengið heildstæða yfirsýn yfir fjármál og útgjöld heimilisins á einum stað í Arion appinu. Þessi nýja þjónusta er unnin í samstarfi við Meniga.

Þessi nýjung er ekki aðeins fyrir viðskiptavini Arion banka heldur er hún öllum opin. Það eina sem þarf að gera er að sækja Arion appið, skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og tengja þá reikninga og kort sem hver og einn vill sjá. Einstaklingur, sem er t.d. með debetkort hjá Arion banka en kreditkort hjá öðrum bönkum, getur þannig séð stöðu og hreyfingar á öllum sínum kortum í Arion appinu. Að auki eru þessar upplýsingar teknar saman og flokkaðar eftir útgjaldaliðum heimilisins. Hver og einn getur svo unnið með flokkunina, endurflokkað tilteknar færslur og lagað að eigin þörfum. Þannig fæst einstök yfirsýn yfir tekjur og útgjöld heimilisins og þróun þeirra yfir ákveðið tímaskeið.

Með þessari nýjung er tekið mikilvægt skref í þágu neytenda. Um er að ræða notendavæna og þægilega lausn sem er í anda opinnar bankaþjónustu og nýrrar tilskipunar Evrópusambandsins um greiðsluþjónustu (PSD2) sem verður innleidd hér á landi á næstu misserum.

Iða Brá Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs:

„Við vitum að íslenskir neytendur eru fljótir að tileinka sér nýjungar og nýta sér stafrænar lausnir. Okkar viðskiptavinir hafa sýnt það í verki að þeir kunna vel að meta hversu aðgengilegt og þægilegt Arion appið er, en á hverjum degi nýta að meðaltali 40 þúsund viðskiptavinir appið. Við viljum stöðugt bæta okkar þjónustu og appið er ein mikilvægasta og vinsælasta þjónustuleiðin okkar. Það er því sérstaklega ánægjulegt að kynna þessa nýjung og að hún standi öllum til boða, óháð því hvort fólk er með reikninga eða kort hjá okkur eða öðrum bönkum.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira