06.12.2020

Yfir­töku­til­boð til hlut­hafa Skelj­ungs hf.

Strengur hf. gerir öðrum hluthöfum Skeljungs tilboð um kaup á hlutum þeirra í félaginu á genginu 8,315 fyrir hvern hlut.

Þann 8. nóvember sl. tilkynntu RES 9 ehf., 365 hf., eða dótturfélag í eigu þess, og RPF ehf. („samstarfsaðilarnir“) um samstarf milli félaganna er varðar hlutabréf útgefin af Skeljungi hf. („Skeljungur“), eins og hugtakið er skilgreint í 2. mgr. 100. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 („vvl.“).

Samstarfið felur í sér að eignarhlutir samstarfsaðilanna í Skeljungi verða færðir í sérstakt félag, Streng ehf., („Strengur Holding“) og dótturfélag þess Streng hf. („Strengur“). Strengur er endanlegur tilboðsgjafi en samstarfsaðilar bera óskipta ábyrgð á efndum yfirtökutilboðsins. Strengur og tengdir aðilar fara með eignar- og atkvæðisrétt fyrir samtals 754.639.578 nafnverðshluti í Skeljungi, sem svarar til 38,00% af heildarhlutafé Skeljungs, eða 38,98% af útistandandi hlutum, þegar tekið hefur verið tillit til hluta í eigu Skeljungs sjálfs. Þar sem samstarfsaðilarnir hafa sameiginlega eignast meira en 30% atkvæðisrétt í Skeljungi hefur myndast tilboðsskylda í skilningi 1. mgr. 100. gr. vvl.

Tilboðsyfirlit og umfang tilboðs

Strengur hefur birt yfirtökutilboð með þeim skilmálum og skilyrðum sem kveðið er á um í X. og XI. kafla vvl. og var birt opinberlega þann 6. desember 2020 („tilboðsyfirlitið“).

Tilboðið nær til allra hluta í Skeljungi sem ekki eru í eigu samstarfsaðilanna eða Skeljungs sjálfs samkvæmt hlutaskrá við lok viðskiptadags þann 4. desember 2020. Þeim hluthöfum hefur verið sent tilboðsyfirlitið ásamt samþykkiseyðublaði og svarsendingarumslagi.

Framangreind skjöl eru aðgengileg hjá umsjónaraðilum yfirtökutilboðsins, á vef Skeljungs (www.skeljungur.is) og í fréttakerfi Nasdaq OMX Nordic (nasdaqomxnordic.com).

Yfirtökuverð og greiðsla

Yfirtökuverð er ákvarðað í samræmi við 2. mgr. 103. gr. vvl. og hljóðar upp á 8,315 kr., fyrir hvern hlut í Skeljungi sem er afhentur veðbanda- og kvaðalaus. Yfirtökuverð er 6,6% hærra en dagslokagengi hlutabréfa Skeljungs 6. nóvember sl., sem var síðasti viðskiptadagur áður en tilkynnt var um samstarf og fyrirhugað yfirtökutilboð. Greiðsla fyrir yfirtekna hluti verður innt af hendi í íslenskum krónum inn á þann bankareikning sem tengdur er vörslureikning bréfanna eigi síðar en fimm viðskiptadögum eftir að gildistími yfirtökutilboðsins lýkur.

Tilboðstímabil og samþykki yfirtökutilboðs

Gildistími yfirtökutilboðsins er fjórar vikur, frá kl. 09:00 þann 6. desember 2020 til kl. 16:00 þann 4. janúar 2021. Hluthafi sem vill samþykkja yfirtökutilboðið skal annað hvort skila frumriti af rétt útfylltu samþykkiseyðublaði sem sent er til hluthafa, á skrifstofu Íslandsbanka (9. hæð), Hagasmára 3, 201 Kópavogi, merkt „Yfirtökutilboð í Skeljung“ eða hins vegar samþykkja tilboðið rafrænt á vef yfirtökutilboðsins á vefslóðinni www.arionbanki.is/yfirtokutilbod-skeljungur með því að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Hluthafi er ábyrgur fyrir því að skrá samþykki tilboðsins rafrænt eða koma frumriti samþykkiseyðublaðsins til Íslandsbanka. Samþykki yfirtökutilboðsins verður að hafa borist umsjónaraðilum eigi síðar en kl. 16:00 þann 4. janúar 2021.

Umsjónaraðilar

Samstarfsaðilarnir hafa ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. og Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. sem umsjónaraðila yfirtökutilboðsins fyrir þeirra hönd. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka í gegnum tölvupóstfangið skeljungur@arionbanki.is og í síma 444-7000 og hjá Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka í gegnum tölvupóstfangið skeljungur@islandsbanki.is og í síma 440-4000.

Fyrirvari

Vefsíða þessi er útbúin og veitt í upplýsingaskyni og felur ekki í sér ráðgjöf af hálfu RES 9 ehf., 365 hf., eða dótturfélags í eigu þess, RPF ehf. eða umsjónaraðila. Tilboðshöfum er bent á að afla sér viðeigandi ráðgjafar sérfræðinga.

Skjöl

Yfirlýsing um samstarf og fyrirhugað yfirtökutilboð í hlutabréf, útgefin af Skeljungi hf.

Yfirtökutilboð - kynning

Auglýsing um tilboðsyfirlit - Strengur hf.

Samþykkiseyðublað

Tilboðsyfirlit


Rafrænt samþykki yfirtökutilboðs


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
01. ágúst 2026

Tilkynning til viðskiptavina - færslur hafa verið leiðréttar

Vegna tæknilegs atviks tvöfölduðust færslur tímabundið hjá hluta viðskiptavina. Færslurnar hafa nú verið leiðréttar, en í kjölfarið kann að hafa myndast kostnaður, til dæmis vegna innistæðulausra færslna eða annarra gjalda sem rekja má til atviksins.

Lesa meira
31. júlí 2026

Færslur birtast tvisvar á færsluyfirliti – unnið að leiðréttingu

Vegna mistaka þá birtast færslur frá gærdeginum, 30. júlí, tvisvar sinnum í færsluyfirlitum greiðslukorta og geta haft áhrif á ráðstöfunarupphæð kortanna. Unnið er að leiðréttingu í samstarfi við Rapyd.

Lesa meira
29. júlí 2026

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2026

Arðsemi eigin fjár Arion banka nam 15,5% á öðrum ársfjórðungi 2026 og 14,6% á fyrri helmingi ársins 2026. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila verður 30. júlí kl. 8:30.

Lesa meira