Heimili - sófi

Að flytja að heim­an

Að flytja að heiman eru stór skref í lífi hverrar manneskju. Að fara úr vernduðu umhverfi foreldrahúsa í ábyrgðina sem fylgir því að reka heimili vex mörgum í augum þrátt fyrir að flestir séu spenntir fyrir því.

Tekjur og kostnaður

Það fyrsta sem þú þarft að huga að er hversu miklar ráðstöfunartekjur þú hefur. Til þess að átta þig á þinni stöðu skaltu bera saman mánaðarlegan kostnað þinn og bera saman við tekjur þínar. Hvort heldur sem þú stefnir á að leigja eða kaupa fasteign er mikilvægt að gera fjárhagsáætlun og standa við hana. Gott er að hafa eftirfarandi sem viðmið:

  • 50% fastur kostnaður, húsnæði, afborganir, matur og samgöngur

  • 30% breytilegur kostnaður, skemmtun, föt og skór, veitingahús, heilsurækt, áhugamál

  • 20% sparnaður, fjárfestingar eða sparnaðarreikningur

Það er að sjálfsögðu alltaf hægt að aðlaga áætlanir, skuldbindingar og plön við þína stöðu hverju sinni en það sem er mikilvægast að gera er að hafa yfirsýn yfir fjármálin, kostnað og eyðslu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Sparnaður í áskrift - kaffihús

Er of seint að fá sér kaffi núna?

Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna? 

Lesa meira
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira