Hlutamyndir

Að missa vinn­una

Að hætta í vinnu getur komið til með ýmsum hætti og haft ólíkar afleiðingar í för með sér. Ef þú ert ráðinn tímabundið í starf eða ákveður sjálfur að segja upp starfi þínu er aðlögunartíminn oft meiri og þú hefur lengri tíma til að hugsa um næstu skref og ert vel undir þau búin.

Að sama skapi getur það verið mikið áfall fyrir fólk að missa vinnuna óvænt ef það er ekki það sem starfsmaðurinn sjálfur hafði stefnt að. Óvissa og óöryggi um framtíðina er fólki ofarlega í huga og það getur valdið miklum kvíða og áhyggjum að vita ekki fyrir víst hvaðan framtíðartekjurnar koma.

Ef þú ert óvænt í þeirri stöðu að missa vinnuna þá er mikilvægt að hafa í huga að þú munt að öllum líkindum finna annað starf sem hentar þinni menntun og áhugasviði. Það eru ýmis skref sem þú getur tekið til þess að auðvelda þér að komast í gegnum bilið sem mögulega myndast þangað til þú hefur störf á nýjum stað.

1. Kannaðu réttindi hjá fráfarandi atvinnuveitanda

Við uppsögn er fyrsta skrefið að fá skýra mynd af stöðunni:

  • Hvað er uppsagnarfresturinn þinn langur?

  • Er ætlast til þess að þú vinnir út uppsagnarfrestinn eða að þú hættir strax?

  • Hvernig er greiðslum á áunnu orlofi og öðrum réttindum háttað?

2. Gefðu þér tíma til að meta stöðina

Áður en þú rýkur af stað er gott að staldra við og taka stöðuna í lífinu:

  • Er þetta tækifæri til að fara í nám eða bæta við þig þekkingu?

  • Hefur þig langað að spreyta þig á eigin rekstri en ekki tekið það skref hingað til?

  • Langar þig að breyta til í starfi og kanna nýja möguleika?

  • Eða viltu halda áfram á sömu braut?

Gerðu áætlun um atvinnuleit og fylgdu henni fast eftir.

3. Fjármálin í forgangi

Fyrir utan óvissuna um stefnu og framtíðarstarf eru fjármálin oft það sem veldur mestum áhyggjum. Settu upp áætlun til að brúa bilið þar til þú færð tekjur frá nýjum stað:

  • Vertu með það á hreinu hvenær síðustu greiðslur berast.

  • Ef þú ert með varasjóði er gott að gera áætlun um hvernig þú vilt nýta hann.

  • Athugaðu rétt þinn til atvinnuleysisbóta (allt að sex mánuðir).

  • Skoðaðu að lækka útgjöld og takmarka neyslu í ákveðinn tíma á meðan á óvissu stendur.

4. Við finnum lausnina saman

Ef þú lendir í greiðsluerfiðleikum erum við hjá Arion banka alltaf tilbúin til þess að fara yfir málin með þér og koma til móts við tímabundna erfiðleika. Við getum til dæmis skoðað eftirfarandi:

  • Greiðsludreifing kreditkorta.

  • Veitt yfirdráttarheimild eða núlán til skamms tíma.

  • Skoðað endurfjármögnun lána til að lækka greiðslubyrði.

  • Ef þú ert með fasteignaveðlán hjá okkur er hægt að skoða tímabundna lækkun á greiðslum vegna tekjumissis.

  • Frysting afborgana af höfuðstól lána, þannig að einungis eru greiddir vextir af höfuðstól á meðan erfiðleikarnir vara.

Við viljum endilega styðja við okkar viðskiptavini og leggja okkar af mörkum til að aðstoða.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira