Hlutamyndir

Æv­in­týr­ið að byrja að búa

Að flytjast að heiman markar stórt skref í lífi okkar flestra. Við segjum skilið við verndað umhverfi foreldrahúsanna og vöknum skyndilega á heimili þar sem enginn minnir okkur á að setja alla skítugu sokkana í vélina, fylla á ísskápinn og salta tröppurnar þegar frýs yfir nóttina. Við berum ábyrgð á öllu heimilishaldinu sjálf – þar með talið fjármálunum.

Gerðu fjárhagsáætlun fyrir heimilið - það margborgar sig

Eitt það fyrsta sem við mælum með, þegar fólk byrjar að búa, er að taka saman létt yfirlit um fjármál heimilisins. Þetta þarf nú ekki að vera neitt flókið: Berðu fastan mánaðarlegan kostnað einfaldlega saman við tekjur þínar. Ef til vill nýtast þar eftirfarandi viðmið:

  • 50% fastur kostnaður; húsnæði, afborganir, matur, samgöngur

  • 30% breytilegur kostnaður; skemmtun, föt og skór, veitingahús, heilsurækt, áhugamál

  • 20% sparnaður; fjárfestingar eða sparnaðarreikningur

Áætlun af þessum toga er auðvitað ekki heilög. Þó er skynsamlegt að reyna að halda sig við einhver viðmið.

Stóra spurningin: Leigja eða kaupa?

Fjárhagsstaða og fjárhagsleg markmið þín skera auðvitað úr um hvort best hentar að leigja eða kaupa fasteign. Kannaðu endilega báða möguleika áður en þú tekur ákvörðun. Ef niðurstaðan verður kaup á fasteign er mikilvægt að hafa í huga að samkvæmt núgildandi reglum Seðlabanka Íslands á eftirfarandi við um fyrstu kaupendur fasteigna:

  • Útborgun er í minnsta lagi 15% af kaupverði

  • Húsnæðislán dekkar að hámarki 85% af kaupverði

  • Greiðslubyrði húsnæðislána má að hámarki vera 40% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum*

Til móts við eigin sparnað má svo sækja um að nýta hluta af viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst upp í útborgun á fyrstu fasteigninni sem þú kaupir.

*Mánaðarlegar ráðstöfunartekjur eru þær tekjur sem standa eftir þegar búið er að draga frá skatta- og gjöld frá launum þínum.

Ekki hika við að heyra í okkur

Við vitum að fyrstu fasteignakaup eru risastór ákvörðun. Þér er vitaskuld alltaf velkomið að hafa samband við ráðgjafana okkar. Við hjálpum þér að finna bestu niðurstöðuna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira