Þinn árangur - Vera

Besta banka­app­ið er 10 ára

Mesti árangurinn er að gera lífið og fjármálin einfaldari fyrir alla

Þetta byrjaði ekkert ofsalega vel hjá okkur. Við vorum eftirbátar hinna bankanna og ég man sérstaklega eftir einni skjámynd úr fréttum þar sem farið var yfir samanburð á þeirri þjónustu sem bankarnir buðu upp á, en hann kom ekki vel út fyrir okkur. Við hökuðum ekki í eitt einasta box því við vorum ekki komin með neitt í loftið. Þarna vorum við byrjuð að vinna að lausn og þessi frétt ásamt ákalli viðskiptavina sparkaði hressilega í rassinn á okkur.

Nú er staðan þannig að appið hefur verið valið besta bankaappið frá því að samanburðamælingar byrjuðu. Nánast allir viðskiptavinir bankans nota appið og gera það að meðaltali rúmlega einu sinni á dag.

Appið hefur breyst mikið frá því við fórum út með það fyrst. Það er skemmtilega kjánalegt að rifja upp fyrsta útlitið.

Þetta var auðvitað ný þjónusta að bjóða upp á bankaapp. Og af einhverjum ástæðum fannst okkur það frábær hugmynd að umgjörðin væri eins og veski. Þannig við vorum fyrstu árin með svartan leður bakgrunn og ekki nóg með það heldur var lógóinu þrykkt í leðrið og aðgerðarhnapparnir eins og bróderað leður með mjög augljósum saumum.

En gæfa okkar er að alveg frá upphafi hefur hönnunin gengið út á einfaldleika og það markmið að létta viðskiptavinum lífið. Hvað sem þú gerir í appinu, þá á það ekki að kosta vesen eða flækjur. Við þurfum öll að greiða reikninga og það á ekki að taka nema nokkrar sekúndur og þú átt að geta gert það meðan þú bíður við kassann úti í búð eða horfir á sjónvarpið. Sama gildir um lífeyrissparnað eða hlutabréfakaup eða hvað sem er. Draumurinn er að viðskiptavinir þurfi að hafa sem minnst fyrir fjármálunum.

Í svona þróun skiptir öllu að vanda til verka. Við fáum engan afslátt þótt við séum íslenskur banki. Fólk notar símann allan daginn og spyr sig því hvort appið standist samanburð við hugbúnað frá Apple, Google og Microsoft. En við höfum verið valin besta bankaappið ár eftir ár svo eitthvað erum að við að gera rétt.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira