Foss

Dán­ar­bú

Það síðasta sem fólk vill þurfa að hugsa um þegar dauðsfall verður í fjölskyldu eru fjármál sem þó er nauðsynlegt að gera fljótlega eftir andlátið. Það sem kemur oft hvað mest á óvart er hversu stífar reglur eru varðandi fjárhagslegar eignir og skyldur við andlát og hversu meitlað í stein ferlið er.

Það sem nauðsynlegt er að gera hið fyrsta eftir andlát einstaklings er að tilkynna andlátið opinberlega með því að senda dánarvottorð frá lækni til sýslumanns. Við andlát verður til lögaðili sem er dánarbúið sjálft sem ber núna fulla ábyrgð á eignum og skuldbindingum þess látna. Oft hafa ættingjar verið þeim látna innan handar við fjármálin fyrir andlátið og haft aðgang að reikningum en öll slík leyfi falla úr gildi við andlátið þar sem dánarbúið er nú sá lögaðili sem hefur öll réttindi.

Þar sem enginn einn erfingi ber sjálfkrafa ábyrgð á dánarbúinu er það sýslumaður sem fer með búið og án leyfis hans er hvorki hægt að hreyfa við eignum né skuldum hins látna.

Leyfi sem sýslumaður getur gefið út í kjölfar andláts eru eftirfarandi:
  • Heimild til að afla upplýsinga um fjárhagsstöðu dánarbús. Með þessu leyfi er hægt að fá skoðunaraðgang að netbanka.

  • Heimild til að ráðstafa inneign dánarbúsins til greiðslu útfararkostnaðar. Þetta er gert með því að framvísa reikningum.

  • Leyfi til einkaskipta. Allir erfingjar þurfa að vera sammála um uppgjörið og taka þá við öllum eignum og skuldum hins látna. Oft tilnefna erfingjar umboðsmanns hópsins sem fer með umboð til þess að hreyfa við búinu.

  • Leyfi eftirlifandi maka til að sitja í óskiptu búi. Í slíkum tilvikum tekur eftirlifandi maki yfir eignir og skuldir hins látna og fer með þær eins og sínar eigin.

  • Opinber skipti. Ef erfingjar koma sér ekki saman um uppgjörið er hægt að óska eftir opinberum skiptum dánarbúsins. Það er þó skiptastjóri sem fer með fullt vald yfir dánarbúinu þar til uppgjöri er lokið.

Þegar leyfi hefur verið gefið út til annars vegar einkaskipta eða til maka að sitja í óskiptu búi þarf að huga að þeim eignum og skuldum sem í dánarbúinu eru.

Það sem þarf að skoða að útgefnum leyfum er eftirfarandi:
  • Stöðu allra innlánsreikninga

  • Stöðu allra skulda

  • Stöðu lífeyrisréttinda og verðbréfaeigna

  • Allar ábyrgðir og lánsveð

  • Tilvist bankahólfs. Ef um bankahólf er að ræða þurfa erfingjar að vera með lykil að hólfinu.

Þegar sýslumaður hefur gefið út leyfi til einkaskipta er öllum kortum lokað og erfingjar bera ábyrgð á eignum og skuldum. Það er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir skuldbindingar svo ógreiddir reikningar safnist ekki upp.

Eins og sést er ferlið við andlát í mjög föstum skorðum sem eru settar til þess að vernda erfingjana sjálfa en ráðgjafar okkar eru ávallt tilbúnir að svara spurningum og aðstoða eins og hægt er. Í flóknari málum er einnig gott að leita á náðir sýslumanns og jafnvel lögmanns.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira