Kassar Flutningar

Ertu að safna þér fyr­ir íbúð?

Að eignast sína fyrstu íbúð er spennandi áfangi, en ferlið getur verið flókið og krefjandi. Þar sem íbúðakaup eru ein stærsta fjárfesting lífsins er lykilatriði að hefja sparnað snemma. Það tekur nefnilega tíma að safna nægu eigin fé til útborgunar, en með góðu skipulagi og réttu úrræðunum getur þú flýtt fyrir ferlinu.

Sparnaður fyrir útborgun

Það er mikilvægt að velja góðan sparnaðarreikning sem ber háa vexti. Við bjóðum því upp á sérstakan sparnaðarreikning fyrir ungt fólk á aldrinum 14 til 35 ára, Íbúðasparnað, sem eru að safna sér fyrir íbúð eða öðrum stórum markmiðum. Ekki þarf samt að skuldbinda sig til að kaupa íbúð - við vitum að áætlanir geta alltaf breyst.

Reikningurinn ber háa vexti og er bundinn í 11 mánuði frá fyrsta innleggi. Eftir þann tíma er 31 dags fyrirvari á úttekt. Úttektin er framkvæmd í appi eða netbanka eins og um venjulega millifærslu sé að ræða.

Ein auðveldasta leiðin til að byrja að spara er síðan að hafa sparnaðinn í áskrift. Þá leggur þú sjálfkrafa inn valda upphæð á sparnaðarreikninginn þinn hver mánaðamót. Þannig verður sparnaðurinn hluti af þínum föstu útgjöldum og þú þarft ekki að muna eftir því að leggja fyrir.

Það er skemmtilegt að fylgjast með sparnaði sínum vaxa og á sama tíma eiga auðveldara með að láta drauma sína rætast.

Viðbótarlífeyrissparnaður auðveldar fyrstu kaup

Viðbótarlífeyrissparnaður er líka mikil hjálp þegar kemur að fyrstu kaupum. Hann virkar þannig að þú velur að setja 2-4% af laununum þínum í viðbótarlífeyrissparnað og launagreiðandi þinn kemur svo á móti með 2% mótframlag sem bætist við launin þín.

Viðbótarlífeyrissparnaðinn þinn getur þú síðan notað til að greiða fyrir fyrstu fasteigina sem þú kaupir, bæði við útborgun og til að lækka höfuðstól lánsins. Þú getur nýtt bæði þitt eigið framlag í sjóðinn og 2% mótframlag vinnuveitanda, en ekki uppsafnaða ávöxtun. Úrræðið gildir í allt að tíu ár og hámarksheimild hvers einstaklings 500.000 kr. á ári, samtals 5 milljónir.

Til að nýta úrræðið þarftu að eiga að minnsta kosti 30% hlut í fasteigninni og sækja um það innan tólf mánaða frá undirritun kaupsamnings.

Þetta er því frábært úrræði til að flýta fyrir draumnum um eigið heimili.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira