Greiðsluþak

Kynntu þér greiðslu­þak og létt­ari greiðslu­byrði

Það hafa fáir farið varhluta af breyttu landslagi í efnahagsmálum á Íslandi og há verðbólga og hækkandi stýrivextir hafa sett strik í heimilisbókhald margra fjölskyldna. Þeir sem eru með óverðtryggð íbúðalán með breytilega vexti hafa fundið hvað mest fyrir hækkun á greiðslubyrði. Eins standa þeir sem hafa verið með fasta vexti nú frammi fyrir því að afborganir munu hækka mikið þegar fastvaxtatímabili lýkur.

Til að koma til móts við þetta breytta landslag og bjóðum við í Arion banka nú upp á tímabundið greiðsluþak á íbúðalánum.

Greiðsluþakið virkar þannig að í stað hefðbundinna afborgana er greidd föst fjárhæð á 12 mánaða tímabili greiðsluþaksins sem lækkar mánaðarlegar afborganir. Hægt er að sækja um að föst fjárhæð greiðsluþaksins miði við 1%, 2%, 3% eða 4% lægri vexti en samkvæmt hefðbundnum skilmálum.

Ef afborgun lánsins á meðan á greiðsluþaki stendur er lægri en sem nemur vaxtahluta afborgana samkvæmt hefðbundnum skilmálum lánsins safnast sá munur upp og leggst ofan á höfuðstól lánsins eftir 12 mánuði. Þetta mun fela í sér hærri greiðslubyrgði lánsins þegar tímabili greiðsluþaks lýkur.

Með tilkomu greiðsluþaksins standa nú til boða fleiri valmöguleikar til þess að lækka greiðslubyrði lána.

Við mælum eindregið með því að viðskiptavinir okkar hafi samband við starfsfólk okkar og fari yfir íbúðalánin sín og kanni hvort að greiðsluþak sé möguleiki sem hentar þeim.

Allar nánari upplýsingar um greiðsluþak íbúðalána má nálgast hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira