
Hvernig viðheld ég góðu lánshæfimati?
Lánshæfismat er einfaldast að útskýra sem einkunnagjöf eða mat á því hvernig einstaklingar eða fyrirtæki munu standast afborganir af lánum og fjárhagslegum skuldbindingum.
Þegar lánshæfismat er gert er skuldastaða skoðuð, fjárhagslegar skuldbindingar og greiðsluhegðun.
Besta leiðin til þess að viðhalda góðu lánshæfismati er að greiða reikninga á réttum tíma eða semja um greiðslur fyrir eindaga.
Það sem hefur langmest áhrif á greiðslumat eru fyrrum eða fyrirhugaðar skráningar á vanskilaskrá. Einstaklingur er skráður á vanskilaskrá ef veruleg vanskil á skuldum eru til staðar sem ekki hefur verið samið um. Skráningar á vanskilaskrá geta haft neikvæð áhrif á lánshæfismat í nokkur ár eftir skráninguna.
Uppflettingar innheimtufyrirtækja og vaktanir þeirra geta einnig haft áhrif á lánshæfismatið.
Annað sem horft er til er skuldastaða, aldur, búseta og hjúskaparstaða, upplýsingar úr skattskrá og tengingar við fyrirtæki.
Það er þó greiðsluhegðun sem hefur langmestu áhrifin og besta leiðin til að tryggja gott greiðslumat er að greiða reikninga fyrir eða á eindaga til að forðast vanskil.
Þegar lánshæfismat er skoðað er einnig mikilvægt að skoða hvort upplýsingar um tengingar við fyrirtæki eru rétt skráðar, þar sem þær upplýsingar geta haft áhrif á greiðslumat einstaklinga.


