
Hvernig virka námslán?
Hvernig virka námslán?
Þegar stefnt er á nám á Háskólastigi vilja flestir geta einbeitt sér að fullu að náminu og minnka við sig vinnu að miklu eða öllu leyti. Til þess að það gangi upp er nauðsynlegt að tryggja framfærslu nemandans og fjölskyldu hans á meðan á náminu stendur. Einn af þeim möguleikum sem eru fyrir hendi er að sækja um námslán.
Námslán er lán sem veitt er námsmönnum, annars vegar til framfærslu á meðan á námi stendur og hins vegar til greiðslu á skólagjöldum. Það er Menntasjóður námsmanna sem úthlutar lánum og sér um innheimtu á þeim. Námið sem nemandi stundar þarf að vera samþykkt af Menntasjóði námsmanna en námið má bæði vera hér á landi eða erlendis. Þegar sótt er um námslán er hægt að velja um að fá það greitt í heild sinni í lok annar eða í hverjum mánuði. Ef valið er að fá lánið greitt mánaðarlega þarf að hafa það í huga að klára allt það nám sem lagt var upp með, svo ekki sé búið að greiða út hærra lán en nemandi á að lokum rétt á.
Hvernig er upphæð lánsins áætluð?
Þegar upphæð framfærslulánsins er áætluð eru nokkrir hlutir skoðaðir. Fullt nám er skilgreint sem 30ECTS einingar og er aldrei lánað fyrir fleiri einingum þó nemandi sé skráður í meira nám en það. Ef nemandi er skráður í færri einingar lækkar framfærslulánið hlutfallslega sem því nemur. Nemendur í eigin húsnæði eða foreldrar í námi fá einnig hærra framfærslulán. Þær tekjur sem námsmenn hafa á meðan á námi stendur geta þó lækkað upphæðina sem menntasjóður áætlar í framfærslulán.
Til þess að tryggja rétta áætlun á framfærslu og rétt skráðan árangur í námi er mikilvægt að nemandi skili öllum gögnum til menntasjóðs námsmanna á réttum tíma. Sjá nánar hér.
Hvenær hefjast afborganir af láninu?
Á meðan á námi stendur greiðir nemandi engar afborganir af námslánum, hvorki af lánum vegna skólagjalda né af framfærslulánum. Þegar öllu námi er lokið og ekki vilji til að þiggja áfram námslán hefur nemandinn val um að skuldabréfið sé útbúið sem verðtryggt eða óverðtryggt lán og hvort afborganir séu tekjutengdar eða ekki.
Fyrir þá nemendur sem klára nám sitt innan þess tíma sem skipulag skólans gerir ráð fyrir, er hægt að sækja um að 30% af námsláninu sé skráð sem námsstyrkur og því ekki greitt til baka.
Þegar ár er liðið frá því námi var lokið og frá síðustu greiðslu á námslánum hefjast afborganir á láninu í samræmi við það sem samið var um.
Hvernig virkar framfærslulán?
Við bjóðum námsmönnum framfærslulán til að brúa fjárhagslegt bil frá upphafi annar þar til námslán frá Menntasjóði námsmanna (LÍN) er greitt út.
Framfærslulán er veitt í formi yfirdráttarheimildar á sérstökum framfærslureikningi. Þú getur millifært sjálfur af reikningnum í Arion appinu eða netbankanum og þannig skammtað þér fjárhæðina yfir önnina fram að útborgun námslána.
Kostnaður við framfærslulán er í formi vaxta og eru þeir mun lægri en á almennum yfirdráttarheimildum. Vaxtakostnaður skuldfærist sjálfkrafa af debetreikningnum þínum og greiddir eru eingöngu vextir af þeim hluta lánsins sem þú nýtir. Við lánum jafnframt fyrir vaxtakostnaði.
Engin gengisáhætta myndast þar sem lánið er í sömu mynt og Menntasjóður námsmanna áætlar.
Til að sækja um framfærslulán þarf fyrst að stofna framfærslureikning í næsta útibúi Arion banka. Að því loknu getur þú sótt um lánið í netbankanum.
Skilyrði fyrir framfærsluláni er lánsloforð frá Menntasjóði Námsmanna.


