
Mismunandi rekstrarform fyrirtækja
Þrátt fyrir að einkahlutafélag sé langalgengasta rekstrarform fyrirtækja á Íslandi er það langt í frá eina tegund rekstrar sem hægt er að velja úr. Það er gott að ráðfæra sig við löggiltan endurskoðanda eða lögmann varðandi val á rekstrarformi svo öruggt sé að þú veljir það rekstrarform sem best hentar þínum rekstri. Munurinn á tegundum félaga liggur helst í ábyrgð eigenda, skattlagningu, stofnkostnaði og kröfum um skráningu og bókhald. Hér er hægt að fræðast um hvert rekstrarform fyrir sig en fyrir nánari upplýsingar bendum við á heimasíðu (Skattsins) en þar er að finna ítarlegri upplýsingar um lög og reglur sem fylgja hverri tegund félags.
Einkahlutafélag ehf
Einkahlutafélag er langalgengasta rekstrarform fyrirtækja á Íslandi. Í slíku félagi bera eigendurnir ekki persónulega ábyrgð á rekstri félagsins nema sem nemur því hlutafé sem þeir leggja til félagsins. Skattaumhverfið er einnig hagstætt ef tekjur eru umfram kostnað. Á móti kemur að það eru meiri kröfur gerðar til einkahlutafélaga um endurskoðun og bókhald og formið í kringum ákvarðanatöku er fastmótað.
Yfirlit yfir einkahlutfélög
Eigendur: Einn eða fleiri
Ábyrgð eigenda: Ábyrgð eigenda er takmörkuð við hlutaféð
Lágmarkshlutafé: 500.000.- ISK
Opinber birting ársreikninga: Já
Krafa um endurskoðun: Annað hvort löggiltur endurskoðandi eða tveir skoðunaraðilar
Kostir: Takmörkuð ábyrgð einstaklinga á rekstri og þannig minni
persónuleg áhætta. Einnig er skattaumhverfið hagstætt.
Ókostir: Stofnkostnaður er hár og miklar kröfur eru gerða á form
rekstursins og upplýsingagjöf.
Hlutafélag hf.
Hlutafélag lýtur mörgum sömu lögmálum og einkahlutafélög gera en helsti munurinn er fólginn í upphæð lágmarkshlutafjár sem er talsvert hærri þegar kemur að hlutafélögum. Eins getur hlutafélag ekki verið í eigu einstaklings en eigendur verða að vera tveir eða fleiri.
Yfirlit yfir hlutafélög
Eigendur: Tveir eða fleiri
Ábyrgð eigenda: Ábyrgð eigenda er takmörkuð við hlutaféð
Lágmarkshlutafé: 4.000.000.- ISK
Opinber birting ársreikninga: Já
Krafa um endurskoðun: Löggiltur endurskoðandi
Kostir: Takmörkuð ábyrgð einstaklinga á rekstri og þannig minni persónuleg áhætta. Einnig er skattaumhverfið hagstætt.
Ókostir: Stofnkostnaður er mjög hár og miklar kröfur eru gerða á form rekstursins og upplýsingagjöf.
Sameignarfélag sf.
Sameignarfélag er algengt á Íslandi þegar fleiri en einn aðili eða lögaðili eru saman í rekstri. Þar sem eigendurnir bera sjálfir beina og ótakmarkaða ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum félagsins hentar sameignarfélag helst sem rekstrarform fyrir einstaklinga eða lögaðila sem bera mikið traust hver til annars. Það er ekki gerð krafa um lágmarkshlutafé þegar sameignarfélög eru stofnuð og geta eigendurnir sjálfir ákveðið hvernig stofnfé skal háttað. Það er mikilvægt að samningar á milli eigenda séu skýrir þar sem mikil ábyrgð hvílir á hverjum eiganda.
Yfirlit yfir sameignarfélög
Eigendur: Tveir eða fleiri
Ábyrgð eigenda: Ábyrgð eigenda er bein og ótakmörkuð
Lágmarkshlutafé: Engin krafa um hlutafé
Opinber birting ársreikninga: Nei
Krafa um endurskoðun: Ekki krafa um endurskoðun
Kostir: Lagaumhverfi í kringum reksturinn er einfalt og litlar kröfur eru gerðar af ríkinu. Stofnkostnaður er lágur og skattaumhverfi er hagstætt.
Ókostir: Ábyrgð eigenda á rekstrinum er bein og ótakmörkuð.
Samlagsfélag slf.
Samlagsfélag er í grunninn svipað og sameignarfélag þar sem ekki er gerð krafa um lágmarkshlutafé og kröfur um endurskoðun og upplýsingaskyldu er ekki jafn miklar og í einkahlutafélögum og hlutafélögum. Það sem er þó sérstakt í samlagsfélagi er að eigendur þurfa ekki allir að bera beina og fjárhagslega ábyrgð á félaginu. Það er lágmarkskrafa að einn af eigendunum beri beina og fulla ábyrgð á rekstrinum en aðrir eigendur geta verið svo kallaðir samlagsmenn. Fjárhagsleg áhætta samlagsmanna er takmörkuð með svipuðum hættu og félagsmanna í hlutafélögum, þ.e.a.s. við ákveðna upphæð sem þeir leggja til rekstursins.
Yfirlit yfir samlagsfélög
Eigendur: Tveir eða fleiri
Ábyrgð eigenda: Ábyrgð að minnsta kosti eins eigenda er bein og ótakmörkuð
Lágmarkshlutafé: Engin krafa um hlutafé
Opinber birting ársreikninga: Nei
Krafa um endurskoðun: Ekki krafa um endurskoðun
Kostir: Lagaumhverfi í kringum reksturinn er einfalt og litlar kröfur
eru gerðar af ríkinu. Stofnkostnaður er lágur og
skattaumhverfi er hagstætt. Hluti eigenda getur borið
takmarkaða ábyrgð á rekstrinum.
Ókostir: Ábyrgð að minnsta kosti eins eigenda á rekstrinum er bein og ótakmörkuð.


