Arion - miðrými

Ótrú­leg þekk­ing á ein­um stað

Guðný Helga er xx hagfræðingur sem starfar í xx.

Hvað ertu búin að starfa lengi hjá Arion?

Ég byrjaði hjá Arion árið 2019. Ég er hagfræðingur, lauk námi frá hagfræðideild HÍ og er auk þess með próf í verðbréfaréttindum.

Hvers vegna Arion?

Ákvað að sækja um starf því mig langaði að öðlast reynslu innan fjármálageirans og hafði heyrt góða hluti um Arion.

Í hverju felst þitt starf ?

Ég starfa við rekstur lífeyrissjóða og verðbréfa og hef mikinn áhuga á hvoru tveggja fjárfestingum og lífeyrissjóðum. Ég hef fengið að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni og sem dæmi þá gaf Arion út bók um lífeyrismál sem ég ritstýrði og ég myndi segja að það sé eitt það skemmtilegasta sem ég hef tekið að mér hingað til.

Finnst þér menntun þín nýtast vel?

Námið mitt hefur nýst mér mjög vel vel í starfi og það er alltaf gott að búa yfir fræðilegri þekkingu en hjá Arion hef ég getað nýtt þekkinguna og líka lært margt í praktík.Það sem helst hefur komið mér á óvart er hvað ótrúlega mikil þekking býr á einum stað. Margir reynsluboltar sem starfa hér sem þekkja allt á sínu sviði út og inn.

Ég er rosalega heppin með samstarfsfólk og stemningin því góð. Arion er framsækinn vinnustaður. Góður starfsandi meðal starfsfólks og mikil samheldni. Það er líka búið vel að starfsfólki og t.d. er flott líkamsrækaraðstaða sem ég hefði viljað nýta mér betur.

Hver eru áhugamálin?

Utan vinnu finnst mér gaman að ferðast en líka hitta góða vini eða fjölskylduna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira