
Persónuvernd
Persónuvernd
Til þess að geta veitt þá þjónustu sem við bjóðum upp á er nauðsynlegt fyrir okkur að geyma ýmsar persónuupplýsingar um þig. Þetta gerum við eingöngu til þess að geta þjónustað þig eins og best verður á kosið.
Öryggi þeirra upplýsinga sem við geymum er okkur gríðarlega mikilvægt og er rík skylda sem hvílir á bankanum í þessum málum. Við erum með vottað stjórnkerfi samkvæmt upplýsingastaðlinum ÍST ISO/IEC27001. Þar að auki höfum við innra eftirlit með persónuupplýsingum og endurskoðum áhættumat okkar og viðbrögð reglulega.
Í sumum tilvikum notum við sjálfvirkt mat á umsækjendum, til dæmis þegar sótt er um yfirdrátt eða lán í appi, eða þegar greiðslumat er framkvæmt á netinu. Í slíkum tilvikum styðjast kerfi okkar við úrvinnslu þeirra gagna sem liggja fyrir um umsækjanda.
Við geymum meðal annars eftirfarandi upplýsingar:
Auðkennisupplýsingar
Nafn, kennitala, viðskiptamannanúmer, rafrænt auðkenni, afrit af persónuskilríkjum
Samskiptaupplýsingar
Heimilisfang, símanúmer, netfang
Upplýsingar um fjölskylduhagi
Sambúðar- og hjúskaparstaða, upplýsingar um maka og börn
Fjárhagslegar upplýsingar er varða vöru eða þjónustu sem óskað er eftir
Viðskiptasaga, greiðslugeta, velta, staða á reikningum
Upplýsingar um eignastöðu
Fasteignir, bifreiðar
Upplýsingar sem tengjast tryggingum
Fastanúmer fasteigna, bílnúmer, tjónasaga, upplýsingar um rétthafa og vátryggða
Persónuvernd barna
Okkur er umhugað um að veita þér og þinni fjölskyldu örugga og ábyrga þjónustu. Þegar kemur að ólögráða einstaklingum vinnur bankinn aðeins með persónuupplýsingar barna þegar það er nauðsynlegt til að uppfylla þá þjónustu sem sóst er eftir, til dæmis þegar stofna á greiðslureikning, gefa út greiðslukort eða veita aðgang að netbanka eða appi Arion banka.
Í slíkum tilvikum er annað hvort gerður samningur um vinnsluna áður en upplýsingar eru sóttar eða fengið sérstakt samþykki forráðamanns, ef barn hefur ekki náð 13 ára aldri.
Við geymum einnig upplýsingar um börn viðskiptavina og sendum markaðsefni er varðar kynningu á vörum og þjónustu ætluð börnum. Slíkt efni er einungis sent til forráðamanna, og auðvelt er að afþakka slíkt markaðsefni hvenær sem er.


