
Skilnaður
Það er óhætt að segja að skilnaður sé eitt af þeim stærri áföllum sem við getum orðið fyrir í lífinu og hvort sem það er okkar eigin ákvörðun eða gegn okkar vilja er þetta erfitt ferli fyrir einstaklinga og fjölskyldur.
Þegar ákvörðun um skilnað hefur verið tekin stendur fólk oftast frammi fyrir frumskógi af spurningum.
Hvernig fer ég að því að reka heimili á eigin spýtur?
Hvað verður um sameiginlegt heimili?
Hvernig skiptum við eignum og skuldum?
Hvernig verður framfærslu barnanna háttað?
Það er mjög eðlilegt að allar þessar ákvarðanir vaxi þér í augum og valdi kvíða en mikilvægast er að taka eitt skref í einu. Það er gott að sýna sér mildi og að vera meðvitaður um að þetta er ferli og ástand sem mun ekki vara að eilífu. Með einu skrefi í einu kemstu á endanum út úr þokunni og getur byrjað uppbyggingu þíns nýja lífs.
Stærsta spurningin er oftast hvað verður um sameiginlegt heimili. Áður en ákvörðun er tekin um að setja heimilið á sölu getur verið gott að fá fjármálaráðgjöf til þess að kanna kaupmöguleika beggja aðila í kjölfar skilnaðar. Eins ef hugmynd er um að annar aðilinn kaupi hinn út úr eigninni.
Fyrir utan heimilið þá er stærsta verkefnið að skipta eignum og skuldum. Reglan er sú að eignum og skuldum skal skipt til helminga við skilnað en ef kaupmáli hefur verið gerður og eignir skráðar sem séreignir falla þær ekki undir helmingsregluna. Til þess að hefja þetta ferli er nauðsynlegt að báðir aðilar hafa yfirsýn yfir allar eignir og skuldir sem skipa á. Það er mjög skynsamlegt að fá ráðgjöf lögfræðings í þessum málum þar sem miklar tilfinningar geta litað ferlið og gott er að fá hlutlausan sérfræðing til þess að leiða ykkur áfram. Þetta getur verið sáttamiðlari sem hefur hag beggja í brjósti eða tveir persónulegir lögfræðingar.
Þegar uppgjör eigna og skulda hefur verið ákveðið eru hagnýtir hlutir næstir á dagskrá, eins og að breyta skráningu á sameiginlegum reikningum og lánum, að stofna nýja reikninga og sækja um nýtt kort, að ganga úr skugga um að skráningar séu réttar á kostnaðarliðum eins og tryggingum, hita- og rafmagni og öðru slíku. Einnig er gott að skoða hvort annar aðilinn á rétt á lífeyrisgreiðslum frá hinum aðilanum. Eins er gott að skoða hver er skráður sem móttakandi líftryggingar og hvort vilji sé til þess að breyta því. Að síðustu eru mörg hjón með skoðunaraðgang á ógreiddum reikningum hvors annars og það er gott að muna eftir því að breyta því.
Það er líka mikilvægt að hjón geri með sér samning um framfærslu barna við skilnað. Lögin segja til um að það foreldri sem börnin eru með lögheimili hjá skuli fá greitt einfalt meðlag frá hinu foreldrinu. Það er þó undir foreldrunum komið að finna leið til þess að tryggja sameiginlega framfærslu barna. Margir stofna reikning sem báðir aðilar greiða inn á mánaðarlega og útgjöld vegna barnanna eru tekin út af þeim reikningi. Ef ekki gengur að finna sameiginlega leið til þess að deila framfærslu barna er hægt að sækja um að Tryggingastofnun hafi milligöngu um greiðslu meðlags.
Það er svo sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sem gefur út leyfi til skilnaðar að borði og sæng og seinna lögskilnaðar.


