Gámar

Skil­virkni og starf­semi stjórn­ar

Stjórn lífeyrissjóðs ber ábyrgð á starfsemi sjóðsins og ætti starfsemi hennar að vera þannig háttað að hún taki sameiginlega betri ákvarðanir en einstakir meðlimir hennar. Stjórn þarf því að vera rétt samsett, vinna vel saman og vera með skýra ferla sem stuðla að skilvirkni og faglegri ákvarðanatöku. Við ákvarðanatöku í einstökum málum er hlutverk stjórnar lífeyrissjóðs að leggja mat á og taka ákvörðun með tilliti til rekstrar sjóðsins og með hagsmuni allra sjóðsfélaga að leiðarljósi, óháð því hverjir tilnefndu eða studdu viðkomandi til stjórnarsetu.

Í skilvirkri stjórn ættu að sitja öflugir og ólíkir liðsmenn, þar sem stjórn verður aldrei sterkari en veikasti liðsmaðurinn. Það skiptir því máli að skapa góða menningu og mynda sterka liðsheild. Að vera góður stjórnarmaður felur í sér að eiga gott samstarf við alla meðlimi stjórnarinnar, hlusta, leggja sig fram við að skilja sjónarmið annarra og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á uppbyggilegan hátt. Það þurfa ekki allir að deila sömu skoðun. Stjórnir þurfa að taka erfiðar ákvarðanir sem geta haft mismunandi áhrif á haghafa. Stjórn þarf því að geta rökstutt og útskýrt ákvarðanir sínar og með hvaða hætti tekið hafi verið tillit til ólíkra sjónarmiða.

Það er auðvelt fyrir stjórnir að falla í þá gryfju að svara eingöngu og bregðast við viðfangsefnum sem stjórnendur eða jafnvel eftirlitsaðilar setja á dagskrá. Þess vegna er mikilvægt að stjórnir verji tíma í starfsáætlun og undirbúi dagskrá funda vel. Það er hlutverk stjórnar að átta sig á hvernig tíma hennar er best varið, hvað skiptir máli og hvað ekki. Það er ekki hlutverk stjórnar að koma saman til þess eins að samþykkja tillögur stjórnenda heldur er hlutverk stjórnar að hafa gagnrýna hugsun að leiðarljósi, spyrja spurninga, afla sér þekkingar og vera viss um að skilja viðfangsefnið áður en ákvörðun er tekin. Þrátt fyrir að meðlimir stjórnar kunni að hafa áratugareynslu eru viðfangsefni stjórna í dag ekki eins fyrirsjáanleg og áður. Það þurfa ekki allir að vera sérfræðingar í öllum viðfangsefnum en það er ábyrgð stjórnar að tiltekin þekking og hæfni sé til staðar innan stjórnarinnar. Þegar stjórn stendur frammi fyrir nýjum viðfangsefnum getur fyrsta skrefið verið að fá kynningar og fræðslu frá starfsmönnum eða ytri aðilum. Fræðsla skapar umræður, spurningar vakna og þekking eykst.

Árlegt sjálfsmat stjórnar er liður í því að bæta skilvirkni og starfsemi stjórnarinnar og tryggja að hún búi sameiginlega yfir viðeigandi þekkingu, reynslu og hæfni. Gerð sjálfsmats gefur stjórninni tækifæri til að líta yfir farinn veg og leggja mat á störf sín og árangur ásamt því að horfa til framtíðar og þeirra verkefna sem fram undan eru.

Tilnefninganefndir geta verið góð leið til að auka gagnsæi og faglega nálgun við val á meðlimum stjórnar. Hlutverk tilnefninganefndar er að skilgreina hvaða þekking, hæfni og reynsla þarf að vera til staðar innan stjórnar, meðal annars með hliðsjón af þeim áherslum og verkefnum sem eru fram undan. Þá leggur tilnefninganefnd mat á samsetningu stjórnar og frammistöðu einstakra meðlima. Niðurstaðan leiðir í ljós hvort þörf er á frekari fræðslu fyrir stjórnina eða hvort gera þarf breytingar á samsetningu hennar. Þessi faglega nálgun ætti einnig að tryggja eðlilega endurnýjun stjórnar og stuðla að framþróun. Í raun ætti enginn meðlimur stjórnar að gera ráð fyrir að gegna hlutverki sínu lengur en þann tíma sem tilnefning hans nær til.

Það er ábyrgðarhlutverk að tilnefna og velja aðila í stjórn lífeyrissjóðs. Þess vegna er mikilvægt að valið sé byggt á faglegum forsendum. Í því felst að horfa til þess hvort aðilar uppfylli hæfis- og hæfniskilyrði en ekki síður að stjórnin í heild búi sameiginlega yfir fjölbreyttri þekkingu, hæfni og reynslu og sé í stakk búin að sinna hlutverki sínu með hagsmuni allra sjóðfélaga að leiðarljósi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira