Hvað er bankaábyrgð?

Bankaábyrgðir eru sjálfstæðir gjörningar sem byggja á skjölum en ekki undirliggjandi viðskiptum.

Skylda bankans er að greiða ef skjölin uppfylla skilmála ábyrgðarinnar.

Útgáfa ábyrgða til erlendra aðila fylgir alþjóðlegum reglum ICC (International Chamber of Commerce), sem tryggja samræmi í viðskiptum þvert á lönd og réttarkerfi.

Staðfestar bankaábyrgðir

Í sumum tilvikum óska erlendir aðilar eftir staðfestingu frá öðrum banka.

Þegar ábyrgð er staðfest tekur erlendur banki að sér sama skuldbindingarhlutverk og útgefandi bankinn sjálfur

Bankaábyrgð
Greiðslur
Hvað er bankaábyrgð? - Arion banki