Hvað er greiðslumat?

Greiðslumat er úttekt á fjárhagslegri stöðu umsækjanda. Það tekur mið af tekjum og gjöldum, eignum og skuldum en niðurstaða þess segir til um greiðslugetu umsækjanda.Lögum samkvæmt ber að framkvæma greiðslumat vegna allra lána yfir tveimur milljónum króna eða fjórum milljónum króna hjá hjónum eða sambúðarfólki.Hverri lánastofnun er heimilt að setja sérstakar vinnureglur og viðmið vegna framkvæmdar greiðslumats en þó í samræmi við reglugerð um lánshæfis- og greiðslumat

Greiðslumat
íbúðalán
Hvað er greiðslumat? - Arion banki