Hvað gerir Stefnir?
Stefnir er rekstrarfélag sjóða sem eru í sölu hjá Arion banka. Stefnir er með um 260 milljarða króna í virkri stýringu miðað við lok árs 2022. Félagið stýrir fjölbreyttu úrvali verðbréfasjóða, sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta og sérhæfðra sjóða fyrir fagfjárfesta. Félagið stýrir einnig eignum nokkurra samlagshlutafélaga sem stofnuð hafa verið í kringum framtaksfjárfestingar. Stefnir hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi í þróun á nýjum tegundum sjóða, jafnt fyrir einstaklinga sem og fagfjárfesta. Við þróun og stýringu sjóða er fyrst og fremst horft til hagsmuna viðskiptavina. Hjá Stefni er lögð mikil áhersla á gegnsæi í upplýsingagjöf.
Hlutverk Stefnis er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Viðskiptavinir Stefnis eiga hlutdeildarskírteini í sjóðum í stýringu Stefnis. Þessi hlutdeildarskírteini eru ávísun á hlut í eignasafni sjóðanna. Eignir sjóðanna eru því alfarið í eigu hlutdeildarskírteinishafa (sjóðfélaga) á hverjum tíma. Varsla á eignum sjóðanna, ásamt útreikningi á gengi sjóða, er í höndum Arion banka.
Samkvæmt lögum eru allir sjóðir reknir af rekstrarfélaginu Stefni sem er sjálfstæður lögaðili. Öll umsjá og varsla verðbréfa er í höndum Arion banka. Vörslufélagið sér meðal annars um að gengisútreikningar, sala, útgáfa og innlausn hlutdeildarskírteina fari fram samkvæmt lögum og samþykktum sjóða.