Hvaða kostnaður fylgir viðskiptum í sjóði?
Þegar viðskiptavinur fjárfestir í sjóði eru kaupin skráð á sölugengi sjóðsins en þegar viðskiptavinur tekur eignahlut sinn út, fer hann úr sjóðnum á kaupgengi sjóðsins.
Söluþóknun:
Við kaup í sjóðum er innheimt söluþóknun í formi mismunar á kaup- og sölugengi (einnig kallað gengismunur eða upphafsþóknun). Söluþóknun er ekki innheimt við kaup í Stefni - Lausafjársjóði. Veittur er 25% afsláttur af söluþóknun sjóða Stefnis ef keypt er í gegnum Arion appið eða netbanka Arion.
Afgreiðslugjald:
Innheimt af öllum viðskiptum í sjóðum í samræmi við verðskrá Arion. Afgreiðslugjald fellur niður þegar um er að ræða reglulegan sparnað i sjóðum. Ekki er tekið afgreiðslugjald af viðskiptum í netbanka.
Umsýsluþóknun:
Árleg umsýsluþóknun er innheimt og fer í að greiða rekstrarkostnað sjóða. Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi og ávöxtun þeirra. Umsýsluþóknun er því dregin frá við útreikning á ávöxtun og gengi sjóða.
Nánari upplýsingar um kostnað má finna í ítarefni um sjóðina og útboðslýsingum þeirra.
Hvað eru viðvarandi gjöld sjóða?
Viðvarandi gjöld er sá kostnaður sem dreginn er af eignum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta. Innifalið í þessum kostnaði er m.a. umsjónarlaun rekstraraðila, greiðslur til vörsluaðila, þjónustugjöld, skráningar- og eftirlitsgjöld, gjöld vegna endurskoðunar og lögfræðilegrar ráðgjafar.
Rekstrarfélag sjóða reiknar og birtir viðvarandi gjöld fyrir sjóði í rekstri félagsins samkvæmt tilmælum FME. Yfirlit yfir þessi gjöld aftur í tímann hjá sjóðum Stefnis er hægt að nálgast hér.
Hvað er vörsluþóknun?
Árlega greiðir viðskiptavinur í verðbréfaþjónustu vörsluþóknun. Hjá viðskiptavinum í eignastýringu er vörsluþóknunin gjaldfærð mánaðarlega. Vörsluþóknunin er m.a. til að standa straum af gjaldi til Nasdaq verðbréfamiðstöðvar og erlendra vörsluaðila vegna vörslu verðbréfa. Hún er jafnframt vegna útsendingar árlegra yfirlita til viðskiptavina, afstemmingar á eignum við verðbréfamiðstöð og erlenda vörsluaðila, vöktunar vegna arðgreiðslna, afborgana skuldabréfa, útdráttar húsbréfa og samanburðar við erlendar og innlendar gengisveitur svo eitthvað sé nefnt.Á afurðum Arion sem og sjóðum Stefnis er gefinn 100% afsláttur af vörsluþóknunum.