Stígðu þín fyrstu skref hjá okk­ur

Í útskriftarprógrammi Arion gefst þér tækifæri til að öðlast víðtæka þekkingu, fjölbreytta starfsreynslu og breitt tengslanet.

Við opnum næst fyrir umsóknir í janúar 2027.

Ósvald og Anna 2

Fjöl­breytt starfs­reynsla í 15 mán­uði inn­an Arion sam­stæðunnar

B19 - starfsfólk

Frábært tækifæri

Um er að ræða 15 mánaða útskriftarprógramm þar sem framúrskarandi útskriftarnemum gefst einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum innan Arion samstæðunnar. Þátttakendur eru í fullu starfi og flytjast á milli sviða/deilda á fimm mánaða fresti, sem veitir dýrmæta reynslu og innsýn í starfsemi bankans.

Í prógramminu færðu tækifæri til að:

  • Þróast í starfi í takt við styrkleika og áhugasvið

  • Vinna með öflugri liðsheild sem leggur áherslu á fagmennsku, metnað og umbætur

  • Byggja upp sterkt tengslanet og öðlast víðtæka starfsreynslu

Leiðsögn mentora

Þátttakendum gefst tækifæri til að læra af reynslumiklum sérfræðingum og komast í kynni við kraftmikið starfsfólk. Þeim er úthlutað mentorum og munu njóta leiðsagnar þeirra á meðan prógramminu stendur.

Markmið útskriftarprógrammsins er skapa vegferð fyrir sérfræðinga og leiðtoga framtíðarinnar með því að greiða fyrir aðgengi að tengslaneti, starfsreynslu og þekkingu.

Prógrammið opnar dyr að auknum starfstækifærum og gerir nemendum kleift að ná forskoti á vinnumarkaði snemma á starfsferli sínum.

starfsfólk - B19

Starfs­línur sem opna dyr að fjöl­breytt­um störf­um

Í boði eru annars vegar sérhannaðar starfslínur sem hugsaðar eru fyrir þá sem hafa mótað sér skoðun á við hvað þeir vilja starfa innan fjármálastarfseminnar og hins vegar opin starfslína sem veitir innsýn í margvíslega þætti fjármálaumhverfis.

Markmið með öllum starfslínum er að gefa einstaklingum innsýn í ólík og fjölbreytt störf innan samstæðunnar og að þátttakendur öðlist þekkingu og reynslu sem hjálpar til við að finna það hlutverk sem þau brenna fyrir.

Lög­fræði

  • Þjónustuver einstaklinga

  • Lögfræðiinnheimta

  • Lögfræðiráðgjöf

Fjármál ein­stak­linga

  • Útibú

  • Verðbréfaráðgjöf

  • Starf með viðskiptastjóra

Op­in starfs­lína

Prógramminu er ætlað að höfða til einstaklinga sem eiga eftir að ákveða hvaða stefnu þeir vilja taka eftir útskrift.

Útskriftarprógramm Arion - Arion banki