Með lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga var innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (e. Markets in Financial Instruments Directive, MiFID II). Markmið laganna er m.a. að tryggja gagnsæi, efla fjárfestavernd og auka traust fjárfesta.Með lögunum breyttust ýmsar mikilvægar reglur sem lúta að því hvernig staðið skal að verðbréfaviðskiptum. Lagðar eru til umfangsmiklar breytingar um þær kröfur sem gerðar eru til skipulegra markaða, markaðstorga fjármálagerninga og verðbréfafyrirtækja. Meðal annars eru gerðar auknar kröfur til gagnsæis, um fjárfestavernd og viðskiptahætti, til stjórnar, stjórnarhátta og almennt um skipulag verðbréfafyrirtækja og skipulegra markaða.
Áður en viðskiptavinur getur hafið verðbréfaviðskipti í gegnum Arion banka ber bankanum að afla upplýsinga um þekkingu hans og reynslu af viðskiptum með fjármálagerninga.
Á grundvelli þeirra upplýsinga metur bankinn hvort fyrirhuguð viðskipti séu tilhlýðileg fyrir viðskiptavin. Mikilvægt er að öllum spurningum sé svarað samviskusamlega svo svörin gefi rétta mynd af hvaða viðskipti eru tilhlýðileg.
Þegar um lögaðila er að ræða styðst bankinn við mat á þekkingu og reynslu umboðshafa af viðskiptum með fjármálagerninga.
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að hefja ferlið (ferlið er það sama í báðum tilfellum):
Ef þú ert ekki með verðbréfasafn stofnast nýtt safn sem verður aðgengilegt í appi / netbanka.
Ef þú ert nú þegar með verðbréfasafn stofnast ekki nýtt safn, verðbréfasamningurinn (MIFIDII) uppfærist aðeins.
Þegar fjárfest er í fjármálagerningum skiptir máli að vita hvaða kostnaður og tengd gjöld fylgja viðskiptunum og hver áhrifin verða á ávöxtun. Með innleiðingu MiFID II tilskipunarinnar er lögð ríkari krafa á verðbréfafyrirtæki að veita viðskiptavinum eða hugsanlegum viðskiptavinum upplýsingar með góðum fyrirvara um allan kostnað og tengd gjöld. Í kostnaðarhandbók bankans er að finna yfirlit yfir kostnað og gjöld við fjárfestingar í hluta- og skuldabréfum og er markmiðið að veita fjárfestum aukna og betri yfirsýn yfir þann kostnað sem fylgir fjárfestingum í fjármálagerningum og áhrif á ávöxtun.
Auk kostnaðarhandbókarinnar eru fjárfestum bent á verðskrá verðbréfa– og lífeyrisþjónustu bankans, bæði skjölin er að finna hér fyrir neðan.
Almennir markaðsskilmálar fyrir verðbréfaviðskipti
Eiginleikar og áhættuþættir fjármálagerninga
Flokkun viðskiptavina - Upplýsingaskjal
Sjálfbærni - Upplýsingsíða Arion banka
Stefna Arion banka um hagsmunaárekstra
Verðskrá verðbréfa- og lífeyrisþjónustu
Yfirlit yfir kostnað og tengd gjöld við fjárfestingar í fjármálagerningum
Við hvetjum þig til að uppfæra svör þín ef breytingar hafa orðið á högum þínum svo matið endurspegli ávallt rétta mynd af þörfum þínum.
Þú getur uppfært svör þín með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan:
Lögaðilum er skylt að vera með LEI-auðkenni (e. Legal Entity Identifier) til að eiga viðskipti með skráð verðbréf frá 1. september 2021.
Markmiðið er að gera alþjóðlegum eftirlitsaðilum kleift að fylgjast með viðskiptum einstakra lögaðila og bæta þannig eftirlit með kerfislegri áhættu og auðvelda rannsókn á misferli tengdu verðbréfaviðskiptum.
Til að mega eiga viðskipti með skráð verðbréf þurfa allir einstaklingar með erlent ríkisfang að skila svokölluðu NCI-auðkenni (e. National Client Identifier) til bankans.
NCI-auðkenni er alþjóðlegt auðkenni fyrir einstaklinga sem fjármálafyrirtæki nota í skýrsluskilum til eftirlitsaðila.
Hafi viðskiptavinur athugasemdir við meðferð kvörtunar hjá bankanum er honum bent á að kynna sér eftirfarandi: