Netbanki
Velkomin í viðskipti
Lán
ÍbúðalánBílalánSkammtímalánEndurfjármögnunFasteignalífeyrislánGreiðslumat
Sparnaður
SparnaðarreikningarGjaldeyrisreikningarViðbótarlífeyrissparnaðurSkyldulífeyrissparnaðurEinkabankaþjónustaAllt um sjóðiHlutabréf
Kort og greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortErlend viðskiptiEndurkröfur
Fríðindi
Arion fríðindiFríðindareikningurArion PremíaEinkaklúbburinn
Tryggingar
Fjölskyldan og fasteigninLíf og heilsaFerðalög og áhugamálÖkutæki
Fjölskyldan
KrakkarnirUnglingarnirUnga fólkiðHeimilið50 ára og eldri
Einfaldaðu lífið
Endurfjármagnaðu láninRáð í greiðsluerfiðleikumFjármál og tryggingar á einum staðSparnaður í áskrift
Á tímamótum
Fyrsta starfiðAð eignast barnAð skipta um starfAð fara á eftirlaunUmsýsla dánarbús
Fræðsla og ráðgjöf
Konur fjárfestumNetsvikGreinarFjármálaráðgjöf
Velkomin í viðskipti
Fjármögnun
Bíla- og tækjalánBankaábyrgðir og innheimturSjálfbær lánFjárfestingalánRekstrarlán
Ávöxtun
Innlánsreikningar fyrirtækjaGjaldeyrisreikningarEignastýringSjóðirHlutabréf
Greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortLaunagreiðendurErlend viðskipti
Lausnir
Arion appiðNetbanki ArionInnheimtuþjónustaFélagaþjónustaB2B
Tryggingar
Framleiðsla og iðnaðurSjávarútvegurLandbúnaðurVerslun og þjónustaFerðaþjónustaHeilbrigðis- og sérfræðiþjónusta
Rekstrarform
Lítil og meðalstór fyrirtækiStærri fyrirtækiEinyrkjarHúsfélög
Einfaldaðu reksturinn
Lykilaðgangur í netbankaRafræn skjöl og birtingarB2B
Ráðgjöf
FyrirtækjaráðgjöfFagfjárfestarEinkabankaþjónusta fyrirtækjaMarkaðsviðskiptiGjaldeyrismiðlun
Þinn árangur
Allt fyrir fjármálastjórannÁrangur viðskiptavina
Stjórnskipulag
StjórnFramkvæmdastjórnStjórnarhættirStefnan okkarArion samstæðanSkipuritEignir til sölu
Mannauður
VinnustaðurinnÚtskriftarprógrammSækja um starfStarfsmannaleit
Sjálfbærni
Okkar sjálfbærniSjálfbær fjármál SFDRStyrkir
Þjónusta
Útibú og hraðbankarHafðu sambandVelkomin í viðskiptiArion appiðNetbanki Arion
Regluverk
Áreiðanleikakönnun einstaklingaÁreiðanleikakönnun lögaðilaRéttarúrræði viðskiptavinaReglur og skilmálarPersónuverndFyrirvararVefkökur
Gögn
Vextir og verðskráGjaldmiðlarUmsóknir og eyðublöð
Fjölmiðlar
Samskipti við fjölmiðlaMyndabankiFréttirGreinarArion greining
Arctic investments
Fjárhagsupplýsingar
LykiltölurUppgjör og kynningarFjárhagsdagatalÁhætta og eiginfjárhlutfallHluthafafundir og aðalfundirFjárhagsleg markmið og framtíðarsýn
Hlutabréf
Skráð hlutabréfHluthafalistiFlagganirGreinendur
Skuldabréf
Fjármögnun og útgáfulýsingEndanlegir skilmálarSértryggð skuldabréfSjálfbær fjármálaumgjörðLánshæfismatÚtgáfuáætlun
Miðlun
Tengiliðir fjárfestaKauphallartikynningarSkráning að kauphallartilkynningum

Við tökum vel á móti þér

Það er einfalt og þægilegt að stofna til viðskipta hjá okkur

Velkomin í viðskiptiHafa samband
Þjónustuver

Opið virka daga 9-16

+354 444 7000

Styttu þér leið
Útibú og hraðbankarVextir og verðskráUmsóknir og eyðublöðReglur og skilmálar
Áreiðanleikakönnun
EinstaklingarFyrirtækiSkráning skilríkja
Netsvik

netsvik@arionbanki.is

Netsvik
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedInTikTok

Arion banki

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 581008 - 0150

Swift: ESJAISRE

LEI: RIL4VBPDB0M7Z3KXSF19

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Bankinn
  2. ▸
  3. Stjórnskipulag
  4. ▸
  5. Stjórn

Stjórn Ari­on banka

Paul Horner

Paul Horner

Formaður

Paul er fæddur árið 1962. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi þann 8. ágúst 2019. Paul er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Paul er formaður stjórnar og situr í áhættunefnd, endurskoðunarnefnd, lánanefnd, starfskjaranefnd og tækninefnd stjórnar.

Paul útskrifaðist með meistaragráðu með láði í tónlist frá University of Oxford árið 1983 og er útskrifaður frá UK Chartered Institute of Bankers. Paul býr að víðtækri alþjóðlegri reynslu af áhættustýringu og stjórnun á sviði viðskiptabanka-, fyrirtækjabanka-, einkabanka- og fjárfestingabankastarfsemi. Paul gegndi margvíslegum stjórnunar- og áhættustýringarstöðum hjá Barclays PLC á árunum 1988 til 2003. Árið 2003 hóf Paul störf hjá The Royal Bank of Scotland Group (RBS) þar sem hann sinnti störfum framkvæmdastjóra og öðrum yfirmannsstöðum.. Frá 2012 til 2016 var Paul framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Coutts & Co Ltd., alþjóðlega einkabankaeiningu National Westminster Group og varð forstjóri þess banka frá 2016 til 2017.Árið 2018 var Paul framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Ulster Bank DAC, Dublin, og stjórnarmaður Coutts & Co Ltd., í Zurich frá 2018 til 2021.

Í dag situr Paul í stjórn AIB Group P.L.C. og á sæti í endurskoðunarnefnd stjórnar AIB, rekstrarnefnd stjórnar og sinnir formennsku í áhættunefnd stjórnar. Einnig situr hann í stjórn LHV (UK) Ltd. og á sæti í endurskoðunar-, tilnefningar- og starfskjaranefnd stjórnar, auk þess að sinna formennsku í áhættunefnd stjórnar LHV. Enn fremur situr Paul í stjórn bresks dótturfélags The National Bank of Kuwait og er formaður áhættunefndar stjórnar og situr einnig í endurskoðunarnefnd stjórnar.

Kristín Pétursdóttir

Kristín Pétursdóttir

Varaformaður

Kristín er fædd árið 1965. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á aðalfundi 15. mars 2023. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Kristín er varaformaður stjórnar, formaður áhættunefndar og situr í endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd stjórnar.

Kristín útskrifaðist sem hagfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1991 og MBA frá Norges Handelshöyskole árið 1993.

Kristín var annar stofnenda Auðar Capital og starfaði sem forstjóri þess fyrirtækis frá 2007 til 2013 og sem stjórnarformaður frá 2013-2017 (síðar Virðing hf.). Kristín var einnig stjórnarformaður Kviku banka á árunum 2018-2020, forstjóri Mentor hf. 2015-2017, framkvæmdarstjóri fjárstýringar Kaupþings banka 1997-2005 og aðstoðarforstjóri Singer & Friedlander 2005-2007. Kristín hefur setið í stjórnum Ölgerðarinnar, Tals, Yggdrasils, Singer & Friedlander, Viðskiptaráðs, Eyris Invest, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fjármálafyrirtækja. Kristín hefur einnig setið í fjárfestingaráðum framtakssjóðanna Eddu, Freyju og Auðar I.

Í dag er Kristín sjálfstætt starfandi stjórnendaráðgjafi og situr í stjórnum Grid ehf. og Miðeindar ehf.

Gunnar Sturluson

Gunnar Sturluson

Stjórnarmaður

Gunnar er fæddur árið 1967. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi þann 8. ágúst 2019. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Gunnar er formaður endurskoðunarnefndar stjórnar og hann er einnig formaður starfskjaranefndar stjórnar ásamt því að sitja í lánanefnd stjórnar.

Gunnar útskrifaðist með Cand.Jur gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1992, útskrifaðist með LL.M gráðu frá Háskólanum í Amsterdam árið 1995, hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1993 og fyrir Hæstarétti Íslands árið 1999.

Gunnar hefur starfað hjá LOGOS lögmannsþjónustu síðan 1992 og starfar þar í dag sem meðeigandi, áður starfaði hann sem faglegur framkvæmdastjóri á árunum 2001-2013.

Gunnar hefur sinnt ýmsum stjórnarstörfum og var meðal annars forseti FEIF, alþjóðasamtaka Íslandshestafélaga, 2014-2025, stjórnarmaður Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss, stjórnarmaður í GAMMA hf. 2017-2019, stjórnarmaður Ríkisútvarpsins ohf. 2016-2017, stjórnarmaður Íslenska dansflokksins 2013-2016, stjórnarmaður hjá Sviðslistamiðstöð Íslands og kjörinn í landskjörstjórn af Alþingi 2013-2017. Þá sinnti Gunnar stundakennslu í samkeppnisrétti við lagadeild Háskóla Íslands 1995-2007.

Steinunn Kristín Þórðardóttir

Steinunn Kristín Þórðardóttir

Stjórnarmaður

Steinunn er fædd árið 1972. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 30. nóvember 2017. Steinunn er hluthafi í bankanum (hlutafjáreign hennar er 12.000 hlutir) og er óháður stjórnarmaður. Steinunn sinnir formennsku í lánanefnd stjórnar og situr í starfskjaranefnd, áhættunefnd og tækninefnd stjórnar. Steinunn situr í stjórn Varðar.

Steinunn er með meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun (MIM) frá Thunderbird, Arizona og BA gráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálafræði frá University of South Carolina.

Steinunn sat áður í ýmsum stjórnum í Evrópu og var í stjórn Bankasýslu ríkisins árið 2011. Steinunn starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance í Noregi frá 2015 til 2017 og sem tímabundinn framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance á Íslandi auk þess að gegna stöðu forstöðumanns alþjóðadeildar fyrirtækisins á sviði matvæla og sjávarfangs árið 2017. Þá stofnaði Steinunn ráðgjafafyrirtækið Akton AS og Acton Capital AS í Noregi og hefur unnið þar við fjárfestingar og ráðgjöf. Hún starfaði áður hjá Íslandsbanka (síðar Glitni), sem framkvæmdastjóri starfsemi bankans á Bretlandi og fyrir það leiddi hún alþjóðalánveitingar og sambankalána sem forstöðumaður bankans.

Í dag vinnur Steinunn með tæknifyrirtækjum í Noregi bæði sem fjárfestir og ráðgjafi hvað varðar stefnumótun. Hugbúnaðarfyrirtækin sem hún vinnur með eru alþjóðleg uppskölunarfyrirtæki, og er Steinunn er stjórnarformaður Acton Capital AS. Hún er jafnframt stjórnarformaður Norsk-íslenska viðskiptaráðsins. Þá situr Steinunn í tilnefningarnefnd Símans og er í stjórn hugbúnaðarfyrirtækisins Öldu á Íslandi. Enn fremur er hún leiðbeinandi ungra hæfileikaríkra kvenna og stofnandi Women Empower Women og er stjórnarformaður Ólafíusjóðs góðgerðasamtaka í Noregi.

Starfsmannamynd vantar

Tómas Már Sigurðsson

Stjórnarmaður

Tómas Már er fæddur árið 1968. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arin banka á aðalfundi 11. mars 2026. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður.

Tómas er umhverfisverkfræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í skipulagsverkfræði frá Cornell University í Bandaríkjunum.

Tómas er í dag forstjóri HS Orku. Hann tók við starfinu í ársbyrjun 2020 eftir að hafa starfað um sextán ára skeið hjá Alcoa, fyrst sem forstjóri Alcoa á Íslandi, svo sem forstjóri í Evrópu og Miðausturlöndum og loks aðstoðarforstjóri Alcoa á heimsvísu. Tómas Már hefur setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og samtaka, m.a. sem formaður Viðskiptaráðs Íslands 2009-2012, stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins 2005-2011 og stjórnarmaður í samtökum evrópskra álframleiðenda.

Varamenn stjórnar

  • Einar Hugi Bjarnason, lögmaður

  • Sigurbjörg Ólafsdóttir

Heimir Þorsteinsson, löggildur endurskoðandi, hefur verið kjörinn af hluthafafundi í endurskoðunarnefnd stjórnar.

Starfsreglur stjórnar

Und­ir­nefnd­ir stjórn­ar

Samkvæmt starfsreglum stjórnar Arion banka er stjórn bankans heimilt að setja á fót undirnefndir til að fjalla um tiltekna þætti í rekstri bankans. Eigi síðar en mánuði eftir aðalfund skipar stjórn nefndarmenn í undirnefndir ásamt því að meta hvort ráða beri aðila utan stjórnar í einstakar undirnefndir, með það að markmiði að styrkja starf þeirra með aukinni sérfræðiþekkingu. Stjórn hefur sett á fót fimm undirnefndir; endurskoðunarnefnd, áhættunefnd, lánanefnd, starfskjaranefnd og tækninefnd.

Undirnefndir stjórnar setja sér starfsreglur sem eru staðfestar af stjórn bankans og nefndarformenn upplýsa stjórn reglulega um störf sín og verkefni en auk þess hefur stjórn aðgang að öllum gögnum og fundargerðum undirnefnda.

Endurskoðunarnefnd (BAC)

Meginhlutverk endurskoðunarnefndar stjórnar er að stuðla að gæðum þegar kemur að lögskipaðri endurskoðun árs- og árshlutauppgjöra bankans og hafa eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits félagsins, innri endurskoðun og áhættustjórnun, að því er varðar reikningsskil. Nefndina skipa Gunnar Sturluson, formaður nefndarinnar, Kristín Pétursdóttir, Paul Horner og Heimir Þorsteinsson. Stjórn skipaði Heimi Þorsteinsson, löggildan endurskoðanda og aðila utan stjórnar, fyrst í júlí 2017.

Starfsreglur endurskoðunarnefndar stjórnar

Áhættunefnd (BRIC)

Meginhlutverk áhættunefndar stjórnar snýr að áhættustjórnun, m.a. að meta áhættustefnu og áhættuvilja bankans. Nefndina skipa Kristín Pétursdóttir, formaður nefndarinnar, Paul Horner og Steinunn Kr. Þórðardóttir.

Starfsreglur áhættunefndar stjórnar

Lánanefnd (BCC)

Meginhlutverk lánanefndar er að fjalla um lánamál sem eru umfram þær heimildir sem undirnefndir hennar hafa. Nefndina skipa Steinunn Kr. Þórðardóttir, formaður nefndarinnar, Gunnar Sturluson, Kristín Pétursdóttir og Paul Horner. Starfsreglur lánanefndar eru ekki birtar opinberlega.

Starfskjaranefnd (BRC)

Meginhlutverk starfskjaranefndar stjórnar er að útbúa árlega starfskjarastefnu fyrir bankann. Nefndin er jafnframt ráðgefandi fyrir stjórn varðandi starfskjör bankastjóra, framkvæmdastjóra, regluvarðar og innri endurskoðanda, og fyrirkomulag á kaupaukakerfi bankans og öðrum starfstengdum greiðslum. Nefndina skipa Gunnar Sturluson, formaður nefndarinnar, Kristín Pétursdóttir, Paul Horner og Steinunn Kr. Þórðardóttir.

Starfsreglur starfskjaranefndar stjórnar

Tækninefnd (BTC)

Meginhlutverk tækninefndar stjórnar er að vera stjórn og framkvæmdastjórn bankans til ráðgjafar um tækniþróun bankans á næstu árum. Nefndina skipa Paul Horner og Steinunn Kr. Þórðardóttir.

Starfsreglur tækninefndar stjórnar