Við fráfall viðskiptavinar
Við andlát lýkur skattskyldu einstaklings og til verður nýr lögaðili, dánarbú, sem heldur sömu kennitölu og tekur við öllum eignum og skuldum hins látna, þar með talið reikningum.
Eins falla niður öll umboð sem hinn látni hefur gefið öðrum til úttekta, þetta gildir einnig um aðgang að netbanka.
